Hannes Hlífar Stefánsson lauk í gær leik á VII Torneo Internacional Jugando con las Estrellas 2024 opnu móti sem fram fór á Kanaríeyjum. Í kjölfarið á því hófst í dag tveggja daga alþjóðlegt atskákmót, XXVI Guanche de Plata, níu umferðir. Fimm umferðir voru tefldar í dag og er Hannes efstur með 4,5 vinning að þeim loknum.
Í fyrstu umferð vann Hannes með hvítu gegn Sergio Rodriguez (1853). Spánverjinn var yfirspilaður bæði í sókn og pósanum í franskri vörn!
Í 2. umferð hafði Hannes svart gegn Angel Cabrera (2119) og svaraði 3…g3 Catalan með því að skipta yfir í Beneoni með 3…c5. Hannes yfirspilaði andstæðing sinn í þessari skák án þess að lenda í miklum vandræðum.
Í þriðju umferð gegn FM Alberto Hernandez (2287) hlóð Hannes á stakt peð á d-línunni og fékk stöðuyfirburði og vann svo skiptamun og skákina!
Jafntefli kom í fjórðu umferð með svörtu gegn FM Pedro Reyes (2329).
Í síðustu umferð dagsins lagði Hannes þýska FIDE meistarann MIchael Schenderowitsch (2224). Hannes vann snemma peð í miðtaflinu en skipti svo yfir í hrók og fullt af peðum fyrir tvo létta menn og vann nokkuð auðveldlega.

Næst á dagskrá hjá Hannesi er svart gegn Bojan Kurajica (2393), reyndum króatískum stórmeistara.


















