Þeir Helgi Áss Grétarsson og Aleksandr Domalchuk-Jonasson tefldu í dag tvöfalda umferð á Spilimbergo Open, opnu móti á Ítalíu í samnefndum bæ. Þeir voru taplausir og dagurinn þokkalegur en skákirnar þó nokkuð tvísýnar á köflum!
Helgi mætti Kazaka, Alimzha Amirkul (2267) og hafði svart. Upp kom Philidors-vörn. Byrjunin og miðtaflið var lengst í jafnvægi og Helgi jafnvel að fá örlítið betra en gaf þá á sér fyrsta færið með 26…Rd7?
Kazakinn lék sem betur fer eðlilegum leik 27.Hd6 og Helgi slapp við 27.Rh5 þar sem hættan á g7 og f6 veldur því að svartur tapar liði t.d. 27..Rdf8 28.De3! f6 29.Rxf6!
Helgi gaf annan séns með 27…Rd4??
Hér átti hvítur 28.Hxh6! þar sem engin vörn er eftir 28…gxh6 29.De3. Helgi lenti í kjölfarið peði undir og svo öðru peði í endataflinu og vörnin var erfið. Hann náði þó að búa til nægjanlegt mótspil til að ná í jafntefli.
42.Rh1? var leikið með jafnteflisboði. Þess í stað hefði hvítur átt skínandi vinningsmöguleika eftir 42.Dxg7+! Kxg7 43.Rxh5+ Kf7 44.Rxf4 Rxf4 45.g3 með 4 peð fyrir riddara og enga taphættu.
Skák Aleksandr í 2.umferð var öllu rólegri. Aleksandr hafði svart gegn CM Lukas Stoettner (2202) frá Þýskalandi. Tefld var frönsk vörn og Aleksandr aldrei í vandræðum en náði heldur aldrei nægjanlegri fótfestu til að tefla til vinnings. Jafntefli rökrétt úrslit.
Helgi tefldi aðra rússíbanaskák við alþjóðlega meistarann Dusan Lekic (2275). Helgi fórnaði peði fyrir biskupaparið í Semi-slavanum ogfékk aðeins betra tafl. Svarfellingurinn fórnaði skiptamun og í hönd fór mjög spennandi kafli sem endaði þó með þráskák í mjög óræðri stöðu.
Aleksandr náði í eina sigur dagsins þegar hann lagði að velli WIM Anahi Ortiz Verdezoto (2205) frá Equador. Það var einmitt í miðtaflinu sem „miðbaugs-stúlkan“ missti fótana og Aleksandr fékk fría sókn og alla reitina á kóngsvængnum og batt enda á skákina með mátsókn.
Aleksandr hefur því 2,5 vinning en Helgi 2 vinninga. Í fjórðu umferðinni á morgun mætir Aleksandr IM Mahdi Gholami (2496) frá Íran og hefur svart. Helgi Áss hefur einnig svart og mætir FM Christian Palozza (2238) frá Ítalíu.
Spilimbergo Open er 9 umferða opið mót sem fram fer í ítalska bænum Spilimbergo frá 9-15. ágúst. Mótið er fyrir skákmenn yfir 2000 elóstigum með yfir 150 skákmenn. Belginn Daniel Dardha er stigahæstur keppenda of meðal þátttakenda er YouTube-stjarnan Levy Rozman sem eltist nú við stórmeistaratitilinn. Helgi Áss er númer 12 í stigaröðinni og Aleksandr er númer 30. Tímamörk eru 90+30



















