Greinarhöfundur telur sig svona almennt séð hafa nokkuð góða yfirsýn yfir skáksöguna og merkar skákir fremstu meistara. En um daginn rakst ég á viðureign sem hafði farið fram hjá mér og mig rak eiginlega í rogastans eftir yfirferð. Óbeislað hugmyndaflug beggja var allsráðandi en að lokum var það bjartsýnin sem réð úrslitum. Bent Larsen og David Bronstein voru íslenskum skákáhugamönnum vel kunnir. Sá fyrrnefndi kom hingað fyrst til lands í ársbyrjun 1956 til að tefla um Norðurlandameistaratitilinn við Friðrik Ólafsson og margsinnis eftir það. David Bronstein tefldi hér fyrst á Reykjavíkurskákmótinu 1974 og var býsna tíður gestur hér á árunum í kringum 1990. Skákferill beggja er skákáhugamönnum vel kunnur.

Þeir voru í stórum hlutverkum á millisvæðamótinu í Amsterdam fyrir 60 árum en þar varð Larsen í efsta sæti ásamt Tal, Spasskí og Smyslov. Þá hófst ferill hans sem sigursælasti mótaskákmaður heims og árið 1967 var hann fyrsti handhafi „Skák-Óskarsins“. Í Amsterdam áttu sovésku keppendurnir í harðri innbyrðis samkeppni því að reglur FIDE þá gerðu ráð fyrir því að einungis þrír keppendur frá sömu þjóð kæmust áfram í áskorendaeinvígin. Larsen vann Bronstein í æsispennandi viðureign og í skýringum sínum lét hann í veðri vaka að gamlir draugar hefðu birst Bronstein þegar spennan var í hámarki; Bronstein hefði aldrei jafnað sig á tapinu fyrir Filippseyingnum Cardoso í lokaumferð millisvæðamótsins í Portoroz 1958 og því fór sem fór. En kannski hefur skákin sem hér er tekin til meðferðar líka haft sitt að segja:

Alþjóðlega mótið í Moskvu 1962:

Bent Larsen – David Bronstein

Sikileyjarvörn

1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. Bb5+ Rc6 4. 0-0 Bg4 5. h3 Bxf3 6. Dxf3 e6 7. d3 Rge7 8. Bg5 Dd7 9. c3 a6 10. Ba4 Rg6 11. Rd2 b5 12. Bc2 Be7 13. Be3 0-0 14. Dh5 d5 15. exd5 exd5 16. d4 c4 17. f4 Hfe8 18. Rf3 f6 19. Bf5 Dd6 20. Bxg6 hxg6 21. Dxg6 Bf8 22. Hae1 He4 23. Bd2 Re7 24. Dg4 g6 25. h4 Bh6 26. h5 f5 27. Dh4

Larsen var ekki mikið fyrir að þræða vinsælar byrjanir en hér er komin fram staða þar sem hann er peði yfir. Hrókur svarts á e4 tryggir þó ríflegar bætur.

27. … g5!

Frábær leikur.

28. Rxg5 Bxg5 29. Dxg5+ Kf7 30. Dh4 Hg8!

Hér er hugmyndin komin fram. Svartur ræður yfir g-línunni en meira býr undir.

31. Hf3 Hg4 32. Df2 Rg8!

Stefnir til f6 eða h6.

33. Hxe4

Styrkir peðastöðu svarts, var varla um annað að ræða.

33. … dxe4 34. Hh3 Rh6 35. De2 Hg8 36. b3 cxb3 37. axb3 Dd5 38. b4 Da2 39. Kf1 Ke6 40. g3 Kd5

Það er fremur óvenjulegt að kóngurinn taki þátt í baráttunni á miðju borði með „stóru fallstykkin“ inni á.

41. Be1 Db1

Hvítur er í miklum vanda staddur en Larsen kunni líka að sprengja upp peðastöðu og nú fá þrjú peð að flakka.

42. g4! Hxg4 43. c4+ bxc4 44. Ha3 Hxf4+ 45. Kg2 Hg4+ 46. Kh3 Hf4 47. Ha5+ Kxd4 48. Bf2+

 

 

48. … Hxf2+ 49. Dxf2 e3 50. Df4+ De4 51. Dxe4+

Bjartsýnismaðurinn er mættur! Eftir 51. Dxh6 Dg4+ þráskákar svartur.

52. … Kxe4 52. Hxa6

Frípeð svarts er ógnandi. En hvor peðsleikurinn er betri?

 

52. … e2?

Vitlaust peð. Eftir 52. … c3! er staðan jafntefli.

53. Kg2! Kd3 54. Kf2 Rg4+ 55. Ke1 Re5 56. Hd6+ Ke3 57. He6 Kd4 58. h6 Rd3+ 59. Kxe2 Rf4+ 60. Kd1 Rxe6 61. h7

og Bronstein gafst upp. Hvílík barátta.

Skákþættir Morgunblaðsins eru birtir á Skák.is u.þ.b. viku eftir að þeir birtast í Morgunblaðinu. Skákþáttur þessi birtist 3. ágúst 2024

- Auglýsing -