Fjórða umferð á Opna Norðurlandamótinu fór fram í Niðarósi (Þrándheimi) í Noregi. Ekki gekk vel í dag og báðir íslensku keppendurnir töpuðu sínum skákum.

Hjörvar hafði svart gegn norska landsliðsmanninum Frode Urkedal (2564). Fróði var greinilega betur undirbúinn í Berlínarafbriðgi spænska leiksins. Norðmaðurinn náði góðu tímaforskoti en Hjörvar náði að leysa vandamál stöðunnar. Kannski varð Hjörvar værukær þegar því var náð og fór að gæla við meira. Þá kom einn „eldrauður“ leikur.

29…f5?? var tapleikurinn. Fróði sá 30.Bxf5! sem er flott mótsvar. Nú gengur 30…gxf5 ekki útaf 31.Dg3+ og 30…Bxf5 er svarað með 31.Dxc4+ og hvítur vinnur.

Olga mætti streymaranum vinsæla og alþjóðlega meistaranum Eric Rosen (2373). Tapið má reka til 8.e5?! í byrjuninni sem verður að teljast vafasamur. Eftir það var flæði skákarinnar meira og minna Bandaríkjamanninum í hag og Olga komst aldrei inn í skákinni af neinum krafti.

Hjörvar (2,5 af 4) mætir Piu Cramling (2437) í fimmtu umferðinn og hefur hvítt. Olga (1,5 af 4) fær FM Trygve Dahl (2193).

Mótið er tæplega 70 manna alþjóðlega skákmót sem jafnframt er Norðurlandamót í skák. Fjöldi titilhafa tekur þátt og sendir Ísland tvo keppendur til leiks. Hjörvar Steinn Grétarsson, sem var stigahæsti skákmaður Íslands ekki alls fyrir löngu, er fulltrúi okkar ásamt Íslandsmeistara kvenna, Olgu Prudnykovu. Hjörvar er sjöundi í stigaröðinni en framundan er væntanlega spennandi mót. Norðmaðurinn Jon Ludvig Hammer (2596) er stigahæstur keppenda.

 

- Auglýsing -