Landsliðskonan og margfaldi Íslandsmeistari kvenna, Lenka Ptacnikova (2086), hóf um helgina taflmennsku í lokuðum IM flokki í Olomouc. Fjölmargir Íslendingar hafa teflt í þessum lokuðu flokkum en Lenka er eini íslenski fulltrúinn að þessu sinni.

Lenka teflir í lokuðum IM flokki, merktur sem IM-B2 flokkur og er þar stigalægst af 10 keppendum. Allir tefla við alla 9 umferðir.

Fyrsta umferð fór fram á laugardeginum og þar mætti Lenka þrautreyndum alþjóðlegum meistara, Richard Biolek (2347).

Lenka lenti í vandræðum strax í byrjuninni. 5…b6? eru þekkt mistök og má t.d. finna skákir með Yusupow í gömlum Dvoretsky bókum þar sem bent er á þessa byrjunargildru.

Lenka fékk mjög erfiða stöðu strax eftir byrjunina, Biolek refsaði kannski ekki af fullum krafti en hann fékk mjög þægilega stöðu útfrá byrjuninni og missteig sig ekki neitt og vann sigur.

Í dag, sunnudag, var tvöföld umferð…sú eina sem verður á þessu móti. Í fyrri umferð dagsins, 2. umferð mótsins mætti Lenka öðrum alþjóðlegum meistara, Sebastian Plischki (2325) frá Þýskalandi. Þjóðverjinn tefldi hálf leiðinlega, svona „gamla-kalla“ byrjun þar sem skipt er upp á drottningum og teflt upp á endataflið.

Lenka var hinsvegar langt kominn með að yfirspila Þjóðverjann í endataflinu en gerði þá stór mistök.

Lenka hafði teflt vel fram að þessum tímapunkti og hér á hún t.d. að leika 37.c5! eða taka á a5 og kapphlaupin ættu að vera hvítum í hag. Þess í stað hörfaði Lenka 37.Kc5?? og skyndilega er svartur með unnið tafl eftir 37…f3! þar sem hvítur tapaði tíma í að fara vel heppnaðan leiðangur með kónginn en hætta svo við. Lenka fór svo aftur með kónginn á b6 þannig að tvö hrein tempó fóru í vaskinn í þessu endatafli.

Svekkjandi þar sem skákin var algjörlega á réttri leið hjá Lenku!

Í seinni umferðinni hafði Lenka svart gegn FIDE meistaranum Bayarjavkhlan Delgerdalai (2278) sem er aðeins 14 ára gamall og greinilega mikið efni. Teflt var skandinavísk vörn og fékk hvítur fljótlega mjög þægilegt tafl. Lenka fann ekki gott plan fyrir svart og lenti á smá flandri með drottninguna.

Í fjórðu umferðinni mætir Lenka svo FIDE meistaranum Julian Leitgeib (2313) og hefur hvítt. Mjög erfið byrjun hjá Lenku sem fær fjóra af fimm stigahæstu keppendunum í fyrstu fjórum umferðunum.

- Auglýsing -