Íslensku keppendurnir unnu báðir sínar skákir í sjöttu umferð á Opna Norðurlandamótinu í Niðarósi (Þrándheimi) í Noregi. Bæði Hjörvar og Olga mættu stigalægri andstæðingum og unnu „skyldusigra“.
Hjörvar (3 af 5) mætti WIM Sheilu Barth Stanford (2135) sem hefur teflt með norska kvennalandsliðinu og hafði Hjörvar hvítt. Hjörvar setti í fluggír í þessari skák. Hann fórnaði fyrst peði og svo manni og fékk bullandi mátsókn gegn Sikileyjarvörn svarts. Hjörvar vann í aðeins 23 leikjum, glæsileg skák!
17.Bxa6! var smekklegur. Eftir 17…bxa6 18.Da5 er svartur varnarlaus. Annar riddari er í dauðanum á e4 en hann má ekki taka.
Olga hafði hvítt gegn Bernhard Mistelbauer (1867) og lagði hann að velli. Skákin var ekki í beinni.
Í næstu umferð mætir Olga Ishaan Quan Tze Navaratnam (1975) og hefur svart á meðan að Hjörvar glímir við þýska alþjóðlega meistarann Marius Deuer (2452). Marius lagði einmitt Olgu að velli í fyrstu umferð og tilvalið að koma fram hefndum!
Mótið er tæplega 70 manna alþjóðlega skákmót sem jafnframt er Norðurlandamót í skák. Fjöldi titilhafa tekur þátt og sendir Ísland tvo keppendur til leiks. Hjörvar Steinn Grétarsson, sem var stigahæsti skákmaður Íslands ekki alls fyrir löngu, er fulltrúi okkar ásamt Íslandsmeistara kvenna, Olgu Prudnykovu. Hjörvar er sjöundi í stigaröðinni en framundan er væntanlega spennandi mót. Norðmaðurinn Jon Ludvig Hammer (2596) er stigahæstur keppenda.

















