Guðmundur Kjartansson kláraði í dag lokað mót í Danmörku, Copenhagen Chess Challenge. Tefldar voru tvær skákir í dag eins og síðustu fjóra daga. Guðmundur var taplaus fyrir daginn en á lokadeginum vann hann eina en tapaði hinni.
Í fyrri umferðinni mætti Guðmundur danska FIDE meistaranum Nikolai Kistrup (2366) sem átti geysilega gott mót og endaði í öðru sæti. Hann náði að leggja Guðmund að velli, vann af honum skiptamun í miðtafli úr ítalska leiknum þar sem Daninn var að setja töluverða pressu á Gumma.
Seinni skákin var betri hjá Guðmundi en þar mæti hann sænskum FM Martin Jogstad (2383). Gummi yfirspilaði Caro-kann vörn þess sænska og kláraði mótið á góðum nótum.
Guðmundur endaði með 6 vinninga eftir umferðirnar 9 og endaði í þriðja sæti, prýðisárangur. sem skilar ca. 4 elóstigum í gróða fyrir Guðmund.

Mótið klárast á morgun með enn einum tvöföldum degi.
Copenhagen Chess Challenge var lokaður GM flokkur með 10 keppendum þar sem tefldar voru 9 umferðir, allir við alla. Tefldar voru tvær umferðir á dag, alla daga nema fyrsta daginn.
















