Íslensku keppendurnir voru taplausir í sjöundu umferð opna Norðurlandamótsins í Niðarósi (Þrándheimi) í Noregi. Hjörvar gerði jafntefli í sinni skák en Olga vann sína skák.
Hjörvar (4 af 5) mætti þýska alþjóðlega meistarann Marius Deuer (2452) og hafði svart. Ef það ætti að „gera upp“ skákina í stuttu máli má segja að Hjörvar hafi aldrei verið í vandræðum með svart en að sama skapi fékk hann aldrei færi til þess að ógna vinningi.
Skák Olgu (2.5/6) gegn Ishaan Quan Tze Navaratnam (1975) var ekki í beinni en þar náði Olga í sigur.
Eftir umferðina hefur Hjörvar 4,5 vinning og mætir FM Havard Haug (2315) í áttundu umferðinni, Hjörvar hefur svart. Olga hefur 3,5 vinning og fær hvítt gegn serbnesku landsliðskonunnii Jovönnu Eric (2138). Skak.is spáir Olgu vinningi í þessari skák!
Mótið er tæplega 70 manna alþjóðlega skákmót sem jafnframt er Norðurlandamót í skák. Fjöldi titilhafa tekur þátt og sendir Ísland tvo keppendur til leiks. Hjörvar Steinn Grétarsson, sem var stigahæsti skákmaður Íslands ekki alls fyrir löngu, er fulltrúi okkar ásamt Íslandsmeistara kvenna, Olgu Prudnykovu. Hjörvar er sjöundi í stigaröðinni en framundan er væntanlega spennandi mót. Norðmaðurinn Jon Ludvig Hammer (2596) er stigahæstur keppenda.













