Fjórða keppnisdegi er lokið á EM ungmenna í Prag.
Guðrún Fanney Briem átti góðan dag og lagði hina asersku Dinöru Huseynovu (1923) eftir harða baráttu. Guðrún Fanney hefur 3 vinninga eftir umferðina og er í toppbaráttunni. Gaman að segja frá því að Dinara varð Evrópumeistari U8 árið 2019 en það hjálpaði henni lítið í baráttunni í dag. Þær mættust líka á EM fyrir tveimur árum og skildu þá jafnar.
Jósef Omarsson stóð um tíma til vinnings gegn ungverskum nafna sínum Jozsef Jr. Lehocz (2069) en skákin endaði með jafntefli. Jósef er enn taplaus og hefur átt gott mót fram að þessu.

Katrín Ósk Tómasdóttir náði í sinn fyrsta sigur á Evrópumóti. Hún tefldi vandaða skák gegn Alina Khlopkova frá Rúmeníu, stillti öllum mönnunum upp á rétta reiti og í 21. leik kom sleggjan:
21…Dxb1+!!
22. Rxb1 Hc1+
23. Re1 Hxe1 mát
Haukur og Iðunn unnu einnig en Adam, Birkir, Halldóra, Emilía Embla og Karma gerðu jafntefli. Aðrir íslenskir keppendur töpuðu.


Framhaldið:

Umferðir hefjast öllu jöfnu kl. 13:00 að íslenskum tíma. Sýnt er beint frá efstu borðum hvers aldursflokks.
Um mótið:
EM ungmenna í skák 2024 fer fram í Prag, Tékklandi. Íslensku fulltrúarnir á mótinu er 23 talsins, sem er metfjöldi. Alls telur íslenski hópurinn í kringum 60 manns enda eru á svæðinu bæði foreldrar, ömmur og afar og ýmsir aðrir áhugasamir fjölskyldumeðlimir. Gríðarlega stór og flottur hópur.
Teflt er í aldursflokkunum u8, u10, u12, u14, u16 og u18.
Fulltrúar Íslands á mótinu eru:

Þjálfarar íslenska hópsins eru Björn Ívar Karlsson, Daði Ómarsson og Ingvar Þór Jóhannesson. Gauti Páll Jónsson tekur svo þátt í seinni hálfleik að lokinni taflmennsku í Póllandi.














