Dagur Arngrímsson að tafli á Íslandsmóti Skákfélaga.

Þrír skákmenn tryggðu sig áfram á æsispennandi undanmóti fyrir Íslandsmótið í Netskák sem fram fór í kvöld. Þeir Dagur Arngrímsson, Guðmundur Gíslason og Símon Þórhallsson kunnu allir sitthvað fyrir sér í skáklistinni enda allir titilhafar. Þeir verða hinsvegar að teljast nokkuð æfingalausir miðað við marga aðra keppendur í hópnum og lokaniðurstaðan því nokkuð óvænt.

Þessir þrír tryggja sig inn á lokamótið þar sem þegar var búið að bjóða 13 keppendum til leiks í 16-manna útsláttarmót. Nánar má lesa um það í upprunalegri frétt um mótið.

Þeir Dagur og Guðmundur unnu sig upp jafnt og þétt á mótinu og tryggðu sig áfram með innbyrðis jafntefli í lokaumferðinni. Símon þurfti að leggja Róbert Lagerman með svörtu í lokaumferðinni og tókst það með glæsilegri fléttutaflmennsku í lokin.

Fyrirfram hefðu flestir veðjað á annaðhvort Dag Ragnarsson eða Arnar Gunnarsson enda eru þeir stigahæstir á chess.com skákþjóninum, báðir yfir 2700 stigum. Þeir náðu hinsvegar ekki að komast áfram en Arnar hefði líklegast sloppið inn ef Róbert hefði hjálpað honum í lokaumferðinni. Segja má að Róbert hafi því verið örlagavaldur fyrir Arnar, leggur hann að velli (eins og á Borgarskákmótinu) og tapar svo í lokaumferðinni gegn hans helsta andstæðing.

Arnar endaði í 4. sæti og verður 1. varamaður inn í Íslandsmótið verði forföll og Örn Leó 2. varamaður.

Mótið var í beinu streymi hjá Chess After Dark þar sem CAD-bræður ásamt Birni Þorfinnssyni lýstu því sem á gekk! Hægt er að sjá það hér -> Íslandsmótið í Skák – Twitch

Flokkaverðlaun U2000 féllu Andra Stein Hilmarssyni í skaut og U1600 Óli Valur Steindórsson.

Öll verðlaun og sæti eru með FYRIRVARA um að anti-cheating prófanir Chess.com komi til baka án athugasemda en það gerist á næstu dögum!

- Auglýsing -