EM taflfélaga hélt áfram í dag í Vrnjacka Banja í Serbíu þegar 2. umferð fór fram. Tvö íslensk lið taka þátt, Víkingaklúbburinn og Breiðablik en auk þess tefla þeir Margeir Pétursson og Óskar Bjarnason með Gambit Booevoie frá Lúxemborg.
Breiðablik vann 6-0 sigur í 1. umferð og mættu sterku liði Werder Bremen frá Þýskalandi. Breiðabliksstrákarnir voru stigalægri á öllum borðum nema því efsta. Jafntefli var niðurstaðan nokkuð snemma á efsta borði og kannski strategía Þjóðverjana að „neutraliza“ efsta borðið. Benedikt tapaði á neðsta borði en byrjanavélin Birkir Ísak kvittaði það út og staðan 1.5-1.5.
Síðustu þrjár skákirnar enduðu allar með jafntefli og var Björn Hólm hetjan en hann hélt erfiðu drottningarendatafli í einni lengstu skák umferðarinnar. Fín úrslit hjá Blikum!

Víkingaklúbburinn fékk einnig þýska sveit en nokkuð veikari. Jafntefli var á efsta borði og Þjóðverjarnir náðu sigri á neðsta borði. Allar aðrar viðureignir féllu Víkingaklúbbnum í skaut, fínn skyldusigur.

Í þriðju umferð mæta Blikar sterkri sveit Rishon frá Ísrael, Víkingar mæta Perfect frá Moldóvu sem er hálfgerð leppsveit fyrir rússneska og ísraelska skákmenn…sterk sveit líka.
Umferðir hefjast að jafnaði kl. 13:15.
















