Fjórðu umferð á EM taflfélaga í Vrnjacka Banja í Serbíu lauk í gær. Íslensku liðin Víkingaklúbburinn og Breiðablik fengu bæði andstæðinga á svipuðu styrkleikabili en úrslitin voru nokkuð mismunandi.
Blikar mættu þýskri sveit sem var á svipuðu róli en örlítið stigahærri heilt yfir. Þrátt fyrir að Þjóðverjarnir væru stigahærri á fjórum borðum af sex þá gáfu Blikar ekkert eftir og enduðu á að vinna sigur 3.5-2.5. Hilmir og Birkir Ísak drógu vagninn með góðum sigrum. Flottur sigur hjá þessari skemmtilegu og efnilegu sveit.


Víkingaklúbburinn náði ekki jafn góðum árangri. Þrátt fyrir að vera stigahærri á fimm borðum af sex urðu Víkingar að lúta í dúk, 1.5-4.5 sem verða að teljast hreint ótrúlegt úrslit!

Breiðablik mæta Riehen frá Sviss í fimmtu umferð á meðan að Víkingaklúbburinn fær skylduviðureign gegn Ennis Chess Club frá Írlandi.
Viðureignir dagsins


Umferðir hefjast að jafnaði kl. 13:15.















