Vignir Vatnar sigraði Minningarskákmótið

Vinaskákfélagið hélt nú öðru sinni glæsilegt Minningarskákmót um Hrafn Jökulsson á afmælisdegi hans 1 nóvember 2024.

29 skákmenn mættu og þar af 2 stórmeistara (Vignir Vatnar og Jóhann Hjartarsson).

Skákmótið var haldið á Aflagranda 40, en þar hafði Hrafn heitinn verið með bókaupplestur síðustu árin sem hann lifði.

Húsið opnaði með popp og pragt klukkan 15:00, þar sem gestir streymdu inn og gæddu sér á veitingum sem voru svakalega flottar.

Settur var upp minningarveggur með ýmsum myndum af Hrafni Jökulssyni.

Hörður Jónasson forseti Vinaskákfélagsins bauð síðan gesti velkomna á skákmótið og lék síðan fyrsta leikinn fyrir Kjartan Ingvarsson á móti Vignir Vatnar.

Skákmótið sjálft hófst síðan klukkan 16:00 og voru tefldar 9 umferðir með 3 mín. + 2 sek., á klukkunni.

Skákdómari var Róbert Lagerman og mótstjóri Hörður Jónasson.

Verðlaunin voru hin glæsilegustu, en sá sem sigraði var Vignir Vatnar Stefánsson með 8,5 vinning.

Vignir Vatnar sigraði Minningarskákmótið

Vignir Vatnar fær síðan nafn sitt áritað á glæsilega Bronsstyttu sem Grænlendingar gáfu Vinaskákfélaginu.

2. sæti. Sigurbjörn Björnsson með 7 vinninga.

3. sæti. Róbert Lagerman með 7 vinninga.

16 ára og yngri: Birkir Hallmundarson með 6 vinninga.

65 ára og eldri: Eiríkur Björnsson með 6 vinninga.

Vinaskákfélagið vill þakka starfsfólki á Aflagranda 40 fyrir frábæra þjónustu með kaffið og kökurnar. Einnig viljum við þakka Bakarameistaranum fyrir frábærar kökur.

Hægt er að sjá úrslit skákmótsins hér: Minningarskákmót Hrafns Jökulssonar 2024

Vinaskákfélagið vill síðan þakka öllum fyrir komuna á þetta glæsilega minningarskákmót og ætlunin er að halda þessi skákmót árlega.

Kveðja, Hörður Jónasson forseti Vinaskákfélagsins.

- Auglýsing -