Fyrstu viðureignir átta manna úrslita Íslandsmótsins í netskák fara fram í kvöld og hefjast kl. 20.
Fyrst fáum við einvígi þar sem mætast: Aleksandr Domalchuk-Jonasson og Guðmundur Kjartansson. Sasha vann Hilmi Frey Heimisson í 16 manna úrslitum í mest spennandi einvíginu hingað til en Gummi hafði öruggan sigur á Símoni Þórhallssyni.
Í seinna einvígi kvöldsins fáum við svo jálkana: Hannes Hlífar Stefánssn og Björn Þorfinnsson. Hannes lagði Guðmund Gíslason að velli en Bjössi hefði betur gegn Olgu Prudnykovu.
Það má búast við æsispennandi einvígjum og hvetjum við alla til að fylgjast með Íslandsmóti Símans í netskák í kvöld í beinni í Sjónvarpi Símans og netrásum RÍSÍ
Keppendur tefla 10 skáka einvígi með tímamörkunum 3+2 þannig að fyrstur í 5,5 vinning vinnur einvígið. Fari 5-5 er gripið til bráðabana.
Lýsendur í kvöld eru Ingvar Þór Jóhannesson og Björn Ívar Karlsson.
Styrktaraðilar eru:
COLLAB・Ljósleiðarinn・Síminn・Lengjan
















