Heimsmeistaramót Ungmenna í flokkum U18, U16 og U14 hélt áfram í gær í Florianopolis í Brasilíu. Ísland á einn keppenda á mótinu en Josef Omarsson (2047) tekur þátt í U14 flokknum. Josef er númer 31 í stigaröð af 118 keppendum. Josef hafði 3,5 vinning eftir 5 umferðir.

Josef hafði svart gegn Ethan Chua (2137) frá Hollandi í sjöttu umferð. Josef hafði svart og upp kom Sveshnikov afbrigðið í sikileyjarvörn sem Josef hefur teflt nokkuð oft. Andstæðingur Josefs missti af færi í miðtaflinu en Josef á móti í endataflinu. Heilt yfir var jafntefli sanngjörn úrslit.

 

Eftir þessi úrslit hefur Josef 4 vinninga af 6 og má vel við una fyrir frídaginn.

Í sjöundu umferð hefur Josef hvítt gegn Serbanum Bosko Stefanovic (2124)

Umferðir hefjast að jafnaði um 18:00 að íslenskum tíma og útsendingar 18:15.

- Auglýsing -