Undanúrslit á Íslandsmótinu í Netskák fóru fram á sunnudagskvöldið og sem fyrr í beinni útsendingu á rás Rafíþróttasambandsins hjá Sjónvarpi Símans og á helstu netveitum eins og YouTube og Twitch. Hjörvar náði að leggja Guðmund Kjartansson að velli í spennandi einvígi en Helgi Ólafsson hafði Björn Þorfinnsson undir.
Fyrra einvígi kvöldsins var á milli Hjörvars og Guðmundar Kjartanssonar. Þeir félagar hafa margoft teflt mikilvægar skákir í baráttu um Íslandsmeistaratitilinn auk þess að vera saman í landsliði Íslands og hjálpast til við undirbúning móta. Þeir þekkja því annan ansi vel og snemma var ansi lítið sem mátti sjá á milli þeirra.
Guðmundur náði sigri strax í fyrstu skák með svörtu en Hjörvar náði að svara strax og kvitta það út. Þrjú jafntefli í röð litu dagsins ljós og allt stál í stál þegar einvígið var hálfnað.
Hjörvar spýtti í lófana og vann tvær skákir í röð og innsiglaði svo sigurinn með tveimur jafnteflum. Niðurstaðan á endanum 5,5-3,5 Hjörvar í vil í spennandi einvígi þar sem framan af var það Guðmundur sem virtist líklegri.
Seinna einvígið á milli þeirra Helga Ólafssonar og Björns Þorfinssonar varð ekki eins spennandi. Björn fann aldrei almennilega góðan höggstað á Helga og eftir að Björn missti af góðu tækifæri í peðsendatafli snemma einvígis sá hann vart til sólar. Helgi vann þrjár af fyrstu fimm skákunum og skildu þeir jafnir í hinum og Helgi því með 4-1 forystu. Björn náði að vinna eina skák en lokatölur urðu 5,5-2,5, nokkuð öruggt hjá Helga.
Það verða því kennarinn og lærisveinninn, Helgi Ólafsson gegn Hjörvari Steini. Þeir munu berjast um Íslandsmeistaratitilinn á sunnudaginn, 8. desember. Varla er við öðru að búast en sú barátta verði þrungin spennu og tilfinningum því Helgi hefur lýst Hjörvari sem einum af sínum uppáhalds nemandum í gegnum tíðina og Hjörvari finnst af þeim sökum óþægilegt að mæta læriföður sínum að mörgu leiti.
Útsendinguna má nálgast hér fyrir neðan:















