Blikinn knái Davíð Kolka var óvænt kominn í efsta sæti á Hastings mótinu með fullt hús eftir þrjár umferðir. Það kom loks að því að „Kolka-vélin“ var stöðvuð en stórmeistarinn Kovchan reyndist of erfiður að þessu sinni.  Vignir Vatnar vann sína skák og Benedikt Briem vann einnig sína skák.

Davíð mætti eins og áður sagði GM Kovchan og varð að lúta í dúk, algjörlega yfirspilaður að þessu sinni með svörtu í Caro-kann.

Vignir komst á beinu brautina. Þegar leið á skákina vélaði hann hvert peðið af fætur öðrum gegn Hugo de Melo Lux (2327) og vann góðan sigur.

Benedikt lagði Litháann Arunas Siupokas (1969) að velli.

Fimmta umferð fer fram á morgun og þar hefur Vignir svart gegn FM Baptise Roux (2338), Davíð hefur hvítt gegn Eimils Steinars (2209) frá Lettlandi en Benedikt svart gegn CM Kendrick Zhang (1979).

- Auglýsing -