Heimsmeistarinn í hraðskák og stigahæsti kappskákmaður heims, Norðmaðurinn Magnus Carlsen, mætti til leiks á fyrsta keppnisdegi í New York. Þátttaka sterkasta skákmanns heims var í hættu eftir „Stóra-Gallabuxnamálið“ en sem betur fer náðust friðarsamningar á milli Magnúsar og FIDE.
Að þessu sinni var breytt fyrirkomulag á Heimsmeistaramótinu í hraðskák. Í stað tveggja daga móts með svissnesku kerfi eins og hefur verið undanfarin ár með tuttugu og einni umferð var boðið upp á þrettán umferða mót á fyrsta degi. Breytingin er sú að átta efstu að loknum 13 umferðum vinna sig inn í 8-manna úrslit daginn eftir.
Þetta kerfi hefur kosti og galla. Kostirnir eru að menn losna við ákveðna heppni í pörunum í lokaumferðunum en gallarnir eru klárlega að menn virðst byrja að semja „strategísk jafntefli“ alltof snemma til að tryggja sig í topp-8. Til stuðnings seinni punktsins má benda á eftirfarandi þrjár skákir hjá Alireza Firouzja sem reyndar tryggði sig áfram í topp-8.
Þrátt fyrir mikla galla á þessu kerfi var nokkur spenna um hverjir enduðu í topp-8. Því miður var á móti full mikið um mjög varkár jafntefli þar sem tapskákir hefðu kostað of mikið.
Er leið á mótið kom upp vafasamt atvik. Danil Dubov, fyrrverandi heimsmeistari í atskák, og einn harðasti at- og hraðskákmaður heims mætti ekki til leiks í lykilskák gegn Hans Niemann. Í viðtölum eftir mót sagðist Dubov einfaldlega hafa farið á hótelherbergi sitt og sofið yfir sig. Þessa afsökun er hinsvegar erfitt að taka trúanlega með 15 mínútur á milli umferða og lítur fjarvera Dubov frekar út sem einhverskonar mótmæli sem því miður er erfitt að taka alvarlega. Í enda dagsins kostaði þetta Dubov sæti í 8-manna úrslitum en Niemann komst inn eftir t.a.m. gott jafntefli gegn Carlsen með svörtu í algjörri lykilskák.
Carlsen og Niemann munu mætast á morgun í 8-manna úrslitum þar sem tefld verða fjögurra skáka einvígi um hvor kemst áfram í undanúrslit!
Eftir mjög spennandi lokaumferðir urðu lokaniðurstöður eftirfarandi:

Danil Dubov og Daniel Naroditsky sátu eftir með sárt ennið, jafnir efstu mönnum en urðu úti á oddastigum. Lokaumferðin var engu að síður hálfgerður skrípaleikur þar sem efstu borðin voru í algjöru kapphlaupi um að semja jafntefli eins fljótt og auðið var. Eini skákmaðurinn sem hagnaðist á því að vinna skák í lokaumferðinni var Jan-Krzysztof Duda sem rétt skreið inn í 8-manna úrslit með sigri í lokaumferðinni og 3,5 vinning í síðustu 4 skákum sínum!
Í 8-manna úrslitum mætast eftirfarandi í 4-skáka einvígjum:
Ian Nepomniachtchi og Volodar Murzin nýkrýndur Heimsmeistari í atskák
Fabiano Caruana mætir Duda en Fabi var lengst af móti í góðri forystu í hraðskákinni.
Magnus mætir Niemann eins og áður sagði og að lokum….
….þá mætir Wesley So hinum unga Alireza Firouzja.
Ljóst er að gríðarlega spennandi dagur er framundan á morgun!
Okkar maður, Íslandsmeistarinn í kappskák og hraðskák, Helgi Áss Grétarsson, átti ekki sinn besta dag. Allir vita hvað býr í Helga á hans besta degi en sá dagur var ekki í dag!
Helgi tapaði tveim fyrstu skákum sínum en kom til baka með tveimur sigrum í næstu skákum og hafði 50% árangur að loknum fjórum umferðum. Þá fór í hönd slæmi kaflinn og tapaði Helgi þremur skákum í röð.
Helgi endaði lokaumferðirnar sex á því að fá 50%, þrjá vinninga úr þeim. Helgi tapaði 5 elóstigum og vildi augljósa gera betur og getur gert betur en þetta var ekki hans dagur.
Heimsmeistarinn í hraðskák er krýndur á morgun. Hægt er að fylgjast með á NRK sjónvarpsstöðinni, Chess.com á YouTube/Twitch eða opinberri útsendingu FIDE á YouTube.
Nær Carlsen að verja titilinn eða er einhver annar klár í bátana, til dæmis Niemann?
















