Blikarnir þrír Vignir Vatnar, Davíð Kolka og Benedikt Briem héldu áfram taflmennsku á Hastings á nýársdag. Árið byrjaði ekki jafn vel og það fyrra endaði. Allir fengu þeir erfiðar paranir og tefldu upp fyrir sig og uppskeran varð aðeins eitt jafntefli.
Það var Vignir Vatnar sem náði í jafnteflið en Vignir hafði svart gegn GM Laurent Pierre-Paoli (2559). Upp kom caro-kann og Vignir fór vandræðalaust í gegnum byrjunina og var aldrei í vandræðum og ef eitthvað er hársbreidd frá því að fá færi sjálfur með svörtu. Jafntefli varð þó niðurstaðan.
Davíð Kolka tapaði sinni skák en lét engan veginn elda sig. Andstæðingur hans, GM Eldar Gasanov (2476), hafði betra tafl í endatafli en baráttan var enn í fullum gangi þegar Davíð valdi klaufalegan millileik í tímahraki og tapaði.
Benedikt hafði svart gegn Yang-Fan Zhou (2424) og reyndi að halda í horfið með því að gefa peð fyrir biskupaparið. Benedikt missti tökin seint í miðtaflinu og umframpeðið fór að telja.
Vignir hefur 5 vinninga er í besta séns af Íslendingunum, hálfum vinningi á eftir efsta manni. Vignir hefur hvítt gegn GM Danny Gormally og sigur þar gæti fært honum ágætis möguleika á að enda á verðlaunapalli.