Íslandsmót grunnskólasveita – stúlknaflokkar fara í skákhöllinni í Faxafeni 12, laugardaginn 25. janúar.
Teflt verður í þremur flokkum. Taflmennska hefst kl. 13:00 og er teflt í öllum flokkum samtímis.
Fyrsti og annar bekkur
Fimm umferðir með tímamörkunum 4+2.
Þriðji til fimmti bekkur
Sex umferðir með tímamörkunum 6+2.
Sjötti til tíundi bekkur
Sex umferðir með umhugsunartímanum 8+2
Umferðafjöldi getur breyst með tilliti til fjölda þátttökusveita. Keppendur geta teflt upp fyrir sig, þ.e. með eldri sveit síns skóla, en þá ekki með annarri sveit. Í hverri sveit skulu vera þrjú borð og varamenn mega vera allt að þrír. Engin takmörk eru á fjölda sveita frá hverjum skóla.
Auk verðlauna til þriggja efstu sveitanna í hverjum flokki, þá verða veitt verðlaun til efstu b-sveitarinnar í hverjum flokki og efstu c/d/e sveitarinnar. Og að lokum verða veitt verðlaun til efstu landsbyggðarsveitarinnar í hverjum flokki.
Þátttökugjald á hverja sveit er 9.000 kr, en að hámarki 18.000 kr. á hvern skóla. Frítt fyrir landsbyggðarsveitir.
Skráningu lýkur kl. 13, föstudaginn, 24. janúar.
Birnukaffi verður á sínum stað, þar sem keppendur og fylgdarfólk geta gætt sér á dýrindis veitingum.