Sjöunda og síðasta umferð Skákþings Akureyrar var tefld í dag, 2. febrúar. Að venju varð baráttar hörð og ströng. Úrslit:
Benedikt-Baldur 0-1
Sigurður-Tobias 0-1
Karl-Valur Darri 1/2
Stefán-Smári 1-0
Eymundur-Markús 0-1
Fyrstir til að ljúka skák sinni voru Bægisár-Bensi og Baldur af ætt Thoroddsena. Sá síðarnefndi er yngismaður og í stöðugri framför. Bensi hefur verið að sækja sig líka, en voru mislögð peð í þessari skák. Staðan var lengi í jafnvægi, uns Bensi náði hættulegum færum með peði á d-línunni. Baldur fékk mótspil gegn hörgdælska kónginum sem hefði átt að duga til jafnteflis, en það vildi Baldur ekki. Fékk hann þá tapað tafl, en hélt samt áfram vinningstilraunum sem báru árangur eftir slæman afleik Benedikts.
Þá var komið að Tobiasi, bekkjarbróður Baldurs, sem er rísandi stjarna eins og hann. Beitti Grünfeldsvörn gegn Sigurði en reyndist ekki kunna fræðin eftir 5.Db3. Hélt sér þó á floti með glúrnum leikjum og þar kom að sýslumannsfulltrúinn spennti bogann of hátt og fórnaði manni. Fékk hættulegt frípeð í sárabætur og eftir nokkrar flækjur tókst T.Matharel að koma sér í unnið hróksendatafl. Gott mót hjá pilti.
Valur Darri er líka í mikilli framför og náði hálfgerðu steinbítstaki á Trillu-Kalla. Sá kann að veiða steinbít og fann það helst sér til lífs að skipta upp í peðsendatafl, þar sem enn voru sjö peð á borðinu. Það hefði átt að vera léttunnið hjá unga manninum, en tæknin í svona endatöflum er ekki alveg komin til hans, svo jafntefli varð niðurstaðan.
Í skák Stefáns og Smára var greinilega barist um verðlaun. Þar skildi á milli keppenda að Smári var nýkominn af þorrablóti, en Stefán enn ófarinn á þá samkomu. Olli það því að hann fékk næsta óviðráðanlegan riddara á d5 (og hafði hvítt) en mótspil þorraþrælsins, (sem virtist nokkuð öflugt um tíma), náði ekki alveg tilgangi sínum og mátti hann eftir ónákvæman leik gefa skákina.
Síðasta skákin sem kláraðist var á milli Eymundar og Markúsar – og var þá ljóst eftir töp Sigurðar og Smára að sá síðarnefndi myndi vinna mótið, hvernig sem færi. Akureyrarmeistarinn fékk snemma nokkuð þægilega stöðu en Eymundur tefldi traust og móaðist við. Að lokum tókst Markúsi þó að brjótast í gegn og ná slíkum hótunum gegn hvíta kóngnum að hann vann mann. Með tvo létta gegn einum var eftirleikurinn auðveldur.
Eins og sjá má af lokastöðunni var sigur Markúsar öruggur – þrátt fyrir tap í fyrstu skákinni. Hann var aldrei í vandræðum eftir það. Annað sæti Stefáns verður líka að teljast verðskuldað – hann er stöðugt að sækja sig þótt sé kominn rétt yfir miðjan aldur. Þá má segja að Tobias hafi komið sterkur inn og er greinilega í framför; sá keppandi sem bætti mest við sig á stigum. Aðrir átti misgott mót, en pistlaskrifari fylgist alltaf sérstaklega með ungum iðkendum. Bæði Valur Darri og Baldur (sem vonandi fer að komast inn á stigalista!) stóðu sig með sóma og munu vonandi sækja sig í áframhaldinu.
Við vísum svo á chess-results um lokastöðuna. Eg bið athugendur bara að taka mið af því að útreikningar chess-results eiga ekki alveg við annað sætið; þar hefur Stefán vinninginn, þrátt fyrir það sem ch-r sýnir. Tobias tefldi of fáar skákir til að hljóta silfrið.