Þriðju umferð Öðlingamótsins lauk nú síðastliðið miðvikudagskvöld eftir stutt hlé vegna Íslandsmóts Skákfélaga. Sigurbjörn Björnsson og Lenka Ptacnikova unnu sínar skákir og hafa bæði fullt hús.

Sigurbjörn lagði Kjartan Maack að velli á efsta borði en þeir höfðu báðir 2 af 2 fyrir umferðina. Kjartan missti tökin á stöðu sinni í miðtaflinu og missti peð og svo skiptamun.

Lenka lagði Þór Valtýsson að velli. Lenka náði aðeins betra miðtafli og góð stjórn á d-línunni. Það leiddi af sér flotta taktík í lokin.

27.Rh6+! og svartur getur lagt niður vopn.

Ingvar náði að halda í við oddafiskana með því að leggja Kjartan Másson að velli í ágætlega útfærðri skák.

Sigurbjörn mætir Lenku í 4. umferðinni í toppuppgjöri en teflt verður á hverju miðvikudagskvöldi.

- Auglýsing -