Átta manna úrslit á Síminn Invitational hefst kl. 18 í kvöld með tveimur viðureignum. Stórmeistarinn Helgi Ólafsson og FIDE-meistarinn Ingvar Þór Jóhannesson mætast í fyrstu viðureigninni og svo stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson og Bragi Þorfinnsson í seinni viðureigninni.
Lengjan metur Helga Ólafsson mun líklegri í sinni viðureign. Helgi fór langt á Íslandsmótinu í netskák sem var með sama fyrirkomulagi fyrir áramót. Helgi lagði Halldór Brynjar Halldórsson nokkuð örugglega að velli 4-0 í 16-manna úrslitum en Ingvar náði óvæntum sigri gegn Jóhanni Hjartarsyni 4-2 í hörkuviðureign.
Skak.is er sammála mati Lengjunnar en Ingvar Þór hefur þó margoft sýnt að hann getur bitið frá sér en ef Helgi er upp á sitt besta eða nálægt því er hann alltaf líklegri.
Lengjan er einnig á því að eldri kynslóðin hafi betur í viðureign Hannesar og Braga. Hannes fór áfram með því að leggja Helga Áss að velli furðulega öruggt en Bragi lagði landsliðskonuna Hallgerði Þorsteinsdóttur að velli. Bragi gæti kannski fengið ráð frá Birni bróður sínum en Björn náði að leggja Hannes að velli á Íslandsmótinu í Netskák fyrir áramót.
Þessar tvær viðureignir verða sýndar beint í kvöld og eins og áður sagði hægt að setja á þær á Lengjunni.
Það er RÍSÍ sem heldur mótið í samstarfi við SÍ. Styrktaraðilar keppninnar eru Síminn, Lengjan, Collab og Ljósleiðarinn.
„Bracket“ mótsins má sjá hér að neðan:

9. janúar
- Helgi Ólafsson – Halldór B. Halldórsson 4-0
- Jóhann Hjartarson – Ingvar Þór Jóhannesson 2-4
26. janúar
- Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir – Bragi Þorfinnsson 0-4
- Helgi Áss Grétarsson – Hannes Hlífar Stefánsson 0-4
- Björn Þorfinnsson – Aleksandr Domalchuk-Jonasson 4-2
9. febrúar
- Davíð Kjartansson – Símon Þórhallsson 3-4
- Hilmir Freyr Heimisson – Dagur Ragnarsson 3,5-2,5
- Guðmundur Kjartansson – Vignir Vatnar Stefánsson 1-4
Átta manna úrslit fara fram 9. og 16. mars. Teflt verður á hverjum sunnudegi þar til mótinu lýkur 6. apríl með úrslitum.
Í átta manna úrslitum mætast:
- Bragi Þorfinnsson – Hannes Hlífar Stefánsson
- Helgi Ólafsson – Ingvar Þór Jóhannesson
- Aleksandr – Hilmir
- Vignir – Símon

















