
Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson og alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson hefja í dag leik á Evrópumóti einstaklinga í skák. Mótið að þessu sinni fer fram í Rúmeníu þar sem tefldar verða 11 umferðir með einum frídegi. Mikið er í húfi en 20 efstu skákmenn mótsins komast á Heimsbikarmótið sem fram fer síðar á þessu ári.
Keppendur á mótinu í ár eru alls 375 og er Vignir númer 69 í stigaröðinni en Aleksandr númer 179. Heimamaðurinn Bogdan-Daniel Deac (2692), sigurvegari á síðasta Reykjavíkurskákmóti, er stigahæstur og eins er Alexey Sarana (2689) alltaf líklegur en fyrir aðeins 2 árum vann hann þrjú mismunandi evrópumót á sama ári þ.e. með mismunandi tímamörkum og bæði einstaklings- og liðakeppni!
Báðir hafa þeir svart í fyrst umferðinni, Vignir gegn reyndum alþjóðlegum meistara kvenna Sgircea en Aleksandr gegn heimamanni á vizkualdrinum.