Hannes að tafli.

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2444) teflir á alþjóðlegu móti í Bad Wörishofen í Þýskalandi. Hannes hefur byrjað vel. Í 2. umferð sem fram fór í gær vann kandidatsmeistarann Nikolai A Grebennikov (2176), sem teflir undir fána FIDE.

Hann tekur sér yfirsetu í 3. umferð í dag og fær fyrir hana hálfan vinning. Ástæðan fyrir yfirsetu Hannesar er að hann mætir Helga Ólafssyni í undanúrslitum Síminn Invitational sem fram fara í kvöld og verður sýnd beint í sjónvarpi Símans.

Hannes teflir í a-flokki þar sem 110 keppendur taka þátt og þar af átta stórmeistarar.  Hanner fimmti í stigaröð keppenda. Ekki er boðið upp á beinar útsendingar. Tefldar eru níu umferðir. Mótinu lýkur 29. mars

 

- Auglýsing -