Mánudaginn 7. apríl síðastliðinn var Reykjavíkurmótið í skólaskák haldið hjá Taflfélagi Reykjavíkur. Alls mættu 84 keppendur til leiks. Það er öflugt skákstarf um þessar mundir í Reykjavík og augljóslega er skákstarf félaganna mikið hjá Taflfélagi Reykjavíkur, Skákdeild Fjölnis og Skákdeild KR. Í Reykjavíkurmótinu er keppt um þrjú sæti á Landsmótinu í skólaskák og því til mikils að vinna og þótt upphafsröð keppenda geti gefið vísbendingu um niðurstöðuna, þá geta oft orðið óvæntar vendingar! Vindum okkur að flokkunum þremur.
1.-4. bekkur
Hér var Pétur Úlfar Ernisson, Langholtsskóla, öruggur sigurvegari með 7 vinningum, fullu húsi. Annað sæti kom á óvart, Prakul Bent Bahadur Gurung úr Fellaskóla nældi sér í 6 vinninga og vann í síðustu tveimur umferðunum tvo með mikla keppnisreynslu og elo-stig, en Prakul hafði einungis teflt á skólamótum fram að þessu. Hvorki fleiri né færri en 6 fengu 5 vinninga og þá var gripið til oddastigaútreiknings eins og gefið var upp í auglýsingu mótsins. Dagur Sverrisson, Vesturbæjarskóla, varð efstur og fékk því sæti á Landsmótinu og 3. sæti mótsins.

Alls tóku 40 krakkar þátt í mótinu úr 11 grunnskólum Reykjavíkur.
1.-4. bekkur á chess-results. https://chess-results.com/tnr1144860.aspx?lan=1&art=1&rd=7
5.-7. bekkur
Hér varð niðurstaðan nánast sú sama og í yngsta stigi, einn keppandi í sérflokki með fullt hús, sá næsti með 6 vinninga og svo nokkrir þar á eftir með 5 vinninga þar sem grípa þurfti til oddastigaútreiknings. Það var Haukur Víðis Leósson, Hlíðaskóla sem hlaut 7 vinnings, Tristan Fannar Jónsson, Rimaskóla fékk 6 vinninga. Efst þeirra sem fékk 5 vinninga og hlaut þar með þriðja sætið í mótinu varð Emilía Embla B. Berglindardóttir, einnig Rimaskóla.

Alls tóku 29 krakkar þátt í mótinu úr 9 grunnskólum Reykjavíkur.
5.-7. bekkur á chess-results.
https://chess-results.com/tnr1144863.aspx?lan=1&art=1&rd=7
8.-10. bekkur
Þessi flokkur sem yfirleitt er langtum fámennastur, var töluvert fjölmennari í ár en oft áður, með 15 keppendum úr 9 skólum. Jósef Omarsson, Landakotsskóla, stóð sig vel og fékk 6.5 vinning, gerði aðeins eitt jafntefli við Teodór Eiríksson, Foldaskóla. Teódór lenti í 2. sæti í mótinu með 5.5 vinning. Í lokaumferðinni tapaði Teodór fyrir Jónasi Jökli Sigurjónssyni, Laugarlækjarskóla. Með innbyrðis jafntefli toppmannanna Ými og Þóri Jökli í lokaumferðinni laumaðist Jónas Jökull í þriðja sæti þrátt fyrir lág oddastig, hann hafði hálfum vinningi meira. Hefðu Ýmir eða Þór Jökull náð að vinna skákina hefði sigurvegari þeirrar skákar komist áfram. Það er enginn afsláttur gefinn, hver punktur skiptir máli!

8.-10. bekkur á chess results.
https://chess-results.com/tnr1144866.aspx?lan=1&art=1&rd=7
Þessi unnu sér því rétt til þátttöku á Landsmótinu í skólaskák 2025 f.h Reykjavíkur:
1.-4. bekkur
Pétur Úlfar Ernisson, Langholtsskóla
Prakul Bent Bahadur Gurung, Fellaskóla
Dagur Sverrisson, Vesturbæjarskóla
5.-7. bekkur
Haukur Víðis Leósson, Hlíðaskóla
Tristan Fannar Jónsson, Rimaskóla
Emilía Embla B. Berglindardóttir, Rimaskóla
8.-10. bekkur
Jósef Omarsson, Landakotsskóla
Theodór Eiríksson, Fellaskóla
Jónas Jökull Sigurjónsson, Laugalækjarskóla


