Arjun Erigaisi. Mynd: Lennart Ootes/Tata Steel.

FIDE hefur birt keppendalistann fyrir Grand Swiss mótið árið 2025, sem fram fer í Samarkand í Úsbekistan dagana 3. til 16. september. Um er að ræða fjórðu útgáfu þessa sterka móts, sem áður hefur farið fram á Mön (2019 og 2023) og í Riga (2021).

Grand Swiss er eitt af stærstu mótum ársins í alþjóðlegri skák og er eftirsótt af sterkustu skákmönnum heims þar sem mótið er jafnframt undanmót fyrir Áskorendamótið 2026, þar sem næsti áskorandi um heimsmeistaratitilinn ræðst. Í ár taka 172 keppendur þátt – 116 í opna flokknum og 56 í kvennaflokknum. Tveir efstu keppendur í hvorum flokki vinna sér sæti á Áskorendamótinu.

Sterkasta Grand Swiss mótið hingað til

Þetta verður stærsta og sterkasta Grand Swiss mótið til þessa. Ungar stjörnur úr fremstu röð skákarinnar skipa efstu sætin á styrkleikalistanum. Þeir Gukesh D (19 ára, núverandi heimsmeistari) og Arjun Erigaisi (21 árs, 2782) eru efstir á styrkleikalista opna flokksins, með Praggnanandhaa R (19 ára, 2767) og Nodirbek Abdusattorov (20 ára, 2767) rétt á eftir. Alireza Firouzja (22 ára, 2766), nr. 8 í heimi, er í fimmta sæti.

Af þekktari nöfnum má nefna Ian Nepomniachtchi, Anish Giri, Shakhriyar Mamedyarov, Levon Aronian og Vladimir Fedoseev sem skipa restina af topp 10. Einnig má nefna Hans Niemann, Vincent Keymer, Nihal Sarin og Awonder Liang sem hluta af þeirri öflugu yngri kynslóð sem mætir til leiks.

Aðeins á eftir að úthluta einu sæti fyrir svæðismótið og boðssæti mótshaldara í opna flokknum.

Fjarvera heimsmeistara vekur athygli

Magnus Carlsen og Viswanathan Anand verða ekki með, þar sem þeir uppfylltu ekki regluna um að tefla a.m.k. 30 klassískar á tímabilinu júlí 2024 til júní 2025. Ding Liren, fyrrverandi heimsmeistari, hefur ákveðið að sleppa þátttöku, þrátt fyrir að hafa rétt til þess út frá styrkleika. Fabiano Caruana tekur einnig ekki þátt þar sem hann hefur nú þegar tryggt sér sæti á Áskorendamótinu 2026 með sigri í FIDE Circuit 2024.

Kvennaflokkurinn – Tan Zhongyi efst á lista

Í kvennaflokknum eru 44 keppendur sem hafa unnið sér þátttökurétt samkvæmt styrkleika, en einnig bætast við 12 keppendur frá svæðamótum, FIDE boðssætum og boðssæti mótshaldara. Tan Zhongyi, fyrrverandi heimsmeistari, leiðir styrkleikalistann. Þar á eftir koma Humpy Koneru, Anna Muzychuk og Kateryna Lagno.

Stóraukinn verðlaunapottur

Verðlaunafé mótsins hefur verið verulega hækkað frá síðustu útgáfu. Í opna flokknum er heildarverðlaunapotturinn $625,000 (á móti $460,000 árið 2023) og í kvennaflokknum er hann $230,000 (á móti $140,000).


Nánari upplýsingar og listi yfir keppendur:

🔗 Opni flokkurinn
🔗 Kvennaflokkurinn

Um FIDE Grand Swiss

FIDE Grand Swiss er haldið annað hvert ár og er 11 umferða opið skákmót með svissnesku fyrirkomulagi. Mótið hefur frá upphafi laðað að sér flesta af sterkustu skákmönnum heims. Meðal sigurvegara síðustu ára eru Wang Hao (2019), Alireza Firouzja og Lei Tingjie (2021), og Vidit Gujrathi og Vaishali Rameshbabu (2023).

🔗 Heimasíða Grand Swiss 2025

- Auglýsing -