Bárður að tafli í síðasta Landsliðsflokki.

Tvíburabræðurnir Bárður Örn og Björn Hólm Birkissynir áttu erfiðan dag á tvöföldum degi í gær á opnu móti í Frakklandi. Aðeins kom hálfur vinningur í hús, Bárður gerði jafntefli í fyrri umferð dagsins, þeirri sjöttu en báðir töpuðu þeir í sjöundu umferð.

Bárður hefur 3,5 vinning af 7 en Björn 3 vinninga.

Mótinu lýkur á föstudaginn næstkomandi.

- Auglýsing -