Akureyringarnir knáu þeir Stefán Steingrímur Bergsson og CM Halldór Brynjar Halldórsson áttu sérdeilis prýðilegan dag á opna mótinu í Valencia „VI Open Internacional Valencia Cuna del Ajedrez“ í gær þegar 5. umferð fór fram og kom 1,5 vinningur í hús hjá þeim félögum.

Alls taka 137 skákmenn þátt og eru 26 þeirra yfir 2400 elóstigum. Akureyringarnir eru í raun nokkuð neðarlega í styrkleikaröðinni en Stefán er númer 93 í röðinni en Halldór númer 100 í styrkleikaröðuninni.

Úrslit þeirra félaga það sem af er móti fyrir umferð gærdagsins voru eftirfarandi:

Í fimmtu umferð tefldu þeir hlið við hlið og náðu sérdeilis prýðilegum úrslitum. Báðir höfðu þeir svart og hafði Stefán svart á írsku landsliðskonununa WIM Trishu Kanyamalara (2233) og endaði sú skák með jafntefli. Halldór Brynjar hafði svart gegn CM Albert Sala (2215) og náði sér í góðan sigur.

Tefld er ein skák á dag og lýkur mótinu á sunnudag, 15 efstu borð eru í beinni og vonandi ná okkar menn þangað þegar líður á mótið!

- Auglýsing -