Helgi Ólafsson og Ingvar Þór Jóhannesson landsliðsþjálfarar hafa valið keppnislið Íslands á Evrópumóti landsliða í skák, sem fer fram í Batumi, Georgíu, frá 4.-15. október. Evrópumót landsliða fer fram annað hvert ár á oddatölu árum en Ólympíuskákmótin fara farm á sléttum ártölum. Evrópumótin eru að öllu jöfnu mun meira krefjandi mót þar sem lítið er um veik lið.
Liðsvalið er hér í núverandi stigaröð sem þarf ekki að endurspegla endanlega borðaröð.
Lið Íslands í opnum flokki:
1. GM Vignir Vatnar Stefánsson (2509), Íslandsmeistari í skák
2. GM Hannes Hlífar Stefánsson (2436), 13x Íslandsmeistari í skák
3. GM Guðmundur Kjartansson (2417), 3x Íslandsmeistari í skák
4. IM Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2367), yngsti liðsmaðurinn og nýliði
5. IM Dagur Ragnarsson (2365), aftur valinn eftir sex ára fjarveru
Liðstjórinn er reynsluboltinn Helgi Ólafsson, stórmeistari í skák.

Vignir er stigahæstur liðsmanna en þeir Hannes og Guðmundur hafa verið hryggjastykki landsliðsins síðustu ár. Aleksandr teflir í fyrsta skipti fyrir Íslands hönd með a-landsliði Íslands. Ásamt honum kemur Dagur nýr inn í liðið eftir sex ára fjarveru frá landsliði Íslands. Hann tefldi í fyrsta og eina skipti með landsliði Íslands á EM 2019 sem einmitt var haldið í Batumi. Þeir koma inn fyrir Hjörvar Stein Grétarsson og Hilmi Frey Heimisson sem tefldu á EM landsliða 2023 þar sem íslenska sveitin endaði í 24. sæti.
Lið Íslands í kvennaflokki:
1. WGM Lenka Ptácníková (2115), margfaldur Íslandsmeistari
2. WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (2004), þrautreynd landsliðskona
3. WCM Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (1997), forseti SÍ og þrautreynd landsliðskona
4. WCM Guðrún Fanney Briem (1979), yngsta landsliðskona sögunnar
5. WCM Iðunn Helgadóttir (1876), sigurvegari á NM stúlkna á árinu.
Liðsstjóri kvennaliðsins er Ingvar Þór Jóhannesson, FIDE-meistari annar reynslubolti.

Þetta er sama lið og tefldi á Ólympíuskákmótinu í fyrra í Búdapest. Guðrún og Iðunn tefla í fyrsta sinn á EM landsliða og koma þar inn fyrir Olgu Prudnykovu og Lisseth Acevedo Mendez sem voru í liðinu 2023.
Liðið endaði í 27. sæti á síðasta EM landsliða sem var besti árangur liðsins til þessa.
Heimasíða mótsins: https://etcc2025.com/
















