Sextán ára gamall hefur Ediz Gürel (2652) þegar fest sig í sessi sem stigahæsti skákmaður Tyrklands auk þess að vera einn efnilegasti skákmaður heims. Hann varð yngsti stórmeistari Tyrklands árið 2024 og er nú stigahæstur þeirra. Frammistaða hans á Ólympíuskákmótinu í Búdapest sama ár vakti heimsathygli, þar sem hann tefldi á öðru borði og hlaut borðaverðlaun með glæsilegan árangur, 9 vinninga úr 11 skákum.
Tyrknesk skák stendur nú í blóma, með nýja kynslóð ungra meistara sem ryðja sér til rúms á alþjóðavettvangi. Þar ber einnig að nefna landa hans, Yagiz Kaan Erdogmus, sem er þegar orðinn einn stigahæstu unglinga í heimi og sækir hratt í sig veðrið. Saman mynda þeir tvíhöfða framtíðarinnar í tyrkneskri skák og gætu barist á Ólympíuskákmótum við önnur sterk lið eins og Indland og Úzbekistan.
Í tyrknesku súper-deildinni í dag náði Gürel að smella einstaklega fallegum leik á Rússann unga og efnilega Denis Lazavik (2584) sem teflir undir FIDE fánanum. Gárungar eru þegar farnir að tilnefna leik hans sem leik ársins!
Í skák þeirra var Lazavik að enda við að leika 37.Bb2 sem tryggir hvítum betra tafl gegn öllum leikjum…nema einum! Riddarinn á e5 má ekki hreyfa sig útaf mátinu á h8. Hvað fann Gürel hér?

Eins og áður sagði þá má riddarinn ekki hreyfa sig útaf mátinu á h8 og því eru góð ráð dýr. Finni svartur ekki lausn hér tapar hann liði. Lausnin reynist vera 37…Df2!! sem er hreint stórkostlegur leikur! Það kemur á daginn að sama hvernig hvítur tekur á f2 kemur …Rxd3 og það er ekki lengur mát á h8. Svartur vinnur lið!

Stórskemmtilegur leikur hjá þessum unga skákmanni sem vert er að fylgjast með í framtíðinni!
Hér er svo skákin í heild sinni:















