Merkur áfangi Alexandr-Domalchuk Jónasson við taflið í Antalya. — Ljósmynd/EM ungmenna

Alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2374) kláraði í dag tvöfaldan dag númer tvö í dag keppni á Sahel Chess Festival Open A sem fram fer á Amir Palace Hotel í Monastir í Túnis! Sex umferðum er nú lokið á mótinu.

Alls eru 21 keppendur í A-flokki og er Norðmaðurinn Johan-Sebastian Christiansen (2655) þeirra langstigahæstur. Norðmaðurinn hefur verið duglegur að stunda elóstiga-búskap og velur mót eftir því. Aleksandr er næststigahæstur á mótinu.

Í 2. umferð laut Aleksandr í dúk gegn spænskum alþjóðlegum meistara. Sasha missti aðeins tökin í miðtaflinu og var með erfiða stöðu en átti séns á að bjarga sér í endataflinu.

Þessi stórmerkilega staða kom upp:

Hvítur fann ekki bestu leiðina í skákinni en að sama skapi refsaði svartur ekki. Meira má lesa um þessa stöðu í X þræði greinarhöfundar:

Eftir þetta tap kom smá hamur á okkar mann og hann vann þrjár skákir í röð! Í þriðju umferð lá heimamaður með CM titil, Yacine Barbaria (2142). Aleksandr vann peð með þekktri taktískri aðgerð og sat með hálfgerða Sveshnikov stöðu en peði yfir!

Fjórða umferðin var auðveld, indverskur andstæðingur lagðist hreinlega á stokkinn í Catalan og mjög auðveldur tæknilegur sigur.

Fimmta umferðin var ágætis frumkvæðisskák gegn öðrum heimamanni en skákin var tefld í morgun.

Aleksandr var nú kominn með 4 vinninga af 5 og fékk Norðmanninn Johan Sebastian í seinni umferð dagsins. Úr varð löng baráttuskák en Aleksandr virtist aldrei í stórum vandræðum en gerði sig sekan um fingurbrjót í mjög jafnteflislegu endatafli og tapaði að lokum eftir harða baráttu, svekkjandi tap.

Aleksandr hefur svart gegn Ala Eddine Boulrens í sjöundu umferðinni á morgun.

- Auglýsing -