Úrslitakeppni Íslandsmóts Símans í netskák 2025 heldur áfram á sunnudagskvöldið með tveimur viðureignum í 16-manna úrslitum. Keppendur unnu sér inn keppnisrétt ýmis með árangri á mótinu í fyrra, stigum eða í gegnum undanmót. Útsendingin hefst 19:00 og einvígin fljótlega eftir það. Ingvar Þór og Björn Ívar Karlsson sjá um útsendinguna að þessu sinni.
Í útsendingunni verður dregið um töfluröð í úrvalsdeild Íslandsmót skákfélaga – en sumir liðsstjórarnir eru orðnir mjög óþreyjufullir að bíða eftir henni.
Ingvar Þór mun gera betri grein fyrir viðureignunum í frétt á Skák.is á sunnudaginn.
Á sunnudaginn mætast
- Helgi Áss Grétarsson – Björn Hólm Birkisson (hefst kl. 19)
- Vignir Vatnar Stefánsson – Aleksandr Domalchuk-Jonasson (hefst strax að fyrri viðureign lokinni)
Sigurvegarinn í viðureign Helga Áss og Björns Hólm mætir Jóni Kristni Þorgeirssyni í átta manna úrslitum. Sigurvegarinn í viðureign landsliðsmannanna mætir sigurvegaranum í viðureign Ingvars Þórs og Jóhönnu Bjargar sem fram fer þarnæstu helgi.
Viðureignirnar eru á Lengjunni sem telur stórmeistarana Helga Áss og Vigni Vatnar mun líklegri til árangurs. Skák.is minnir á ábyrga spilun.
Hægt er að fylgjast með á Sjónvarpi Símans eða á YouTube rás RÍSÍ eða Twitch Rási RÍSÍ
Viðureignir í 16 manna úrslitum
Drátturinn fyrir 16 manna úrslitum, sem fram fara á sunnudögum í september. Viðureignirnar, raðaðar í dagsetningarröð, raðaðist á eftirfarandi hátt:
- 7. september: Símon Þórhallsson – Bárður Örn Birkisson 4½ – 3½
- 7. september: Bragi Þorfinnsson – Dagur Andri Friðgeirsson 3½ – ½
- 14. september: Róbert Lagerman – Jón Kristinn Þorgeirsson 4-1
- 14. september: Dagur Ragnarsson – Björn Þorfinnsson 2½-3½
- 21. september: Helgi Áss Grétarsson – Björn Hólm Birkisson
- 21. september: Vignir Vatnar Stefánsson – Aleksandr Domalchuk-Jonasson
- 28. september: Birkir Ísak Jóhannsson – Jóhann Hjartarson
- 28. september: Jóhanna Björg Jóhannsdóttir – Ingvar Þór Jóhannesson
Í átta manna úrslitum mætast
- Símon – Birkir-Jóhann
- Björn Þ – Bragi
- Jón Kristinn – Helgi Áss-Björn Hólm
- Jóhanna-Ingvar Þór – Vignir-Aleksandr

















