Símon opnaði mótið með sigri gegn Róbert í 6. umferð

Atskákmóti Akureyrar lauk í gær, 7. desember. Mótið var vel sótt; alls mættu 20 skákmenn til leiks. Baráttan um meistaratitilinn stóð milli titilhafanna þriggja og réðust úrslit í innbyrðis skákum þeirra.

1 FM Thorhallsson, Simon ISL 2181 6,5
2 FM Sigurpalsson, Runar ISL 2179 6
3 IM Karason, Askell O ISL 2149 5,5
4 Eiriksson, Sigurdur ISL 1908 4
5 Olafsson, Smari ISL 1993 4
6 Matharel, Tobias ISL 1616 4
7 Valsson, Nokkvi Mar ISL 1608 4
8 Thoroddsen, Baldur ISL 1658 4
9 Karlsdottir, Harpa Hrafney ISL 1402 3,5
10 Kramarenko, Viacheslav ISL 1444 3,5
11 Sigurgeirsson, Sigthor Arni ISL 1674 3
12 Steingrimsson, Karl Egill ISL 1755 3
13 Bjorgvinsson, Bjorgvin Elvar ISL 0 3
14 Asgrimsson, Valur Darri ISL 1415 3
15 Steinarsson, Elias ISL 0 2
16 Ingason, Frosti Snaer ISL 0 2
17 Lanckman, Galaad ISL 0 1
18 Eggertsson, Egill ISL 0 1
19 Wielgus, Dominik W ISL 0 1
20 Oskarsson, Tony Rafn ISL 0 0

Rúnar gerði jafntefli bæði við Símon og Áskel, en Símon bar sigurorð af Áskatli og kom því fyrstur í mark. Að öðru leyti var mótið jafnt og sérstaklega var baráttar hörð um sigurinn í barnaflokk (f. 2013 og síðar), en þar varð Nökkvi Már sjónarmun á undan þeim Hörpu og Viacheslav. Sigþór hreppti svo unglingaverðlaunin.

- Auglýsing -