Sverrir Gestsson og Jakob Sævar Sigurðsson urðu efstir með 5 vinninga af 6 mögulegum á Jólamóti Goðans sem fram fór í fyrradag á Húsavík. Sverrir varð örlítið hærri á oddastigum og hreppti þvi 1. sætið. Rúnar Ísleifsson kom þar á eftir með 4 vinninga og Smári Sigurðsson fékk 3,5 vinninga. Lokastöðuna má sjá hér fyrir neðan.

Rúnar, Jakob og Smári

Tímamörk voru 10 mín + 5 sek/á leik og tefldar voru 6 umferðir. Alls tóku 11 keppendur þátt í mótinu og þar af tveir ungir drengir úr Öxarfirði sem voru að tefla í fyrsta skipti á skákmóti.

Myndir frá mótinu má finna á heimasíðu Goðans. 

- Auglýsing -