Omar Salama í Sögu í gær. Mynd: Útvarp Saga.

Skáksamband Íslands býður upp á FA-dómaranámskeið 20.-22. febrúar nk. Kennari á námskeiðinu verður enginn annar en okkar langreyndasti og virtasti skákdómari á alþjóða vísu; Omar Salama.

Nánari upplýsingar um námskeiðið má finna á heimasíðu FIDE.

Dagskráin er sem hér segir:

Dagskrá:

Föstudagur 20. febrúar

  • 16:00–18:00 Skákreglur – Grundvallarreglur (2 klst.)
  • 18:00–22:00 Skákreglur – Keppnisreglur (4 klst.)

Laugardagur 21. febrúar

  • 10:00–12:00 Gangur skáka (45 mín), Svissneska kerfið (1 klst.), Skákklukka (15 mín)
  • 13:00–17:00 Skákdómaratitlar (2 klst.), Heiðarleiki (fair play) í skák (2 klst.)

Sunnudagur 22. febrúar

  • 09:00–13:00 Titlar (2,5 klst.) og skákstig (1,5 klst.)
  • 14:00–18:00 Próf (4 klst.)

Fullt námskeiðsgjald er 22.500 kr. en starfandi dómarar/þjálfarar við skákfélög greiða einungis 17.500 kr. Innifalið í því er prófgjald til FIDE (€20).

Námskeiðið fer fram í húsnæði Skákskóla Íslands, Faxafeni 12.
Einnig verður námskeiðið sent út í gegnum fjarfund fyrir þá sem komast ekki á staðinn. Athugið að er ekki hægt að taka prófið nema á staðnum.

Skráningarform

 

- Auglýsing -