Íslandsmót kvenna 2026 hélt áfram í dag í húsnæði Siglingaklúbbsins Þyts, Strandgötu 88 í Hafnarfirði. Önnur umferð var tefld í dag en mótið er teflt næstu daga en mótinu lýkur 10. febrúar. Öllum skákum í landsliðsflokki kvenna lauk með jafntefli en óhætt er að segja að við höfum fengið allan skalann af jafnteflum í dag.
Rólega og „leiðinlega“ jafnteflið var hjá tveimur af sigurstranglegustu keppendunum. Forsetinn Jóhanna Björg hafði hvítt gegn Lenku og tefldi Reti sem varð svo að lokuðum Catalan. 10. leikur hvíts cxd5 létti full mikið á spennunni í stöðunni og fljótt var komin samhverf peðastaða þar sem hvorug tók af skarið.

Emilía Embla er ung skákstelpa á uppleið og hún náði sér í sína fyrstu punkta í lokuðum Landsliðsflokki þegar hún gerði jafntefli við hina reyndu skákkonu Tinnu Kristínu. Emilía tefldi mjög vel gegn drottningarbragði með hvítu og gaman að sjá bætinguna. Hvíta staðan var orðin mjög hættuleg og Tinna mátti hafa sig alla við í vörninni.
Emilía skellti í skemmtilega drottningarfórn 27.He7!? og eftir 27…fxg3 á hvítur þráskák. Hvítur hefði þó getað valið að tefla taflið áfram með 27.Dh4 og hvítur hefur áfram mjög hættulega sóknarstöðu. Skiljanlegt þó að vilja ná úrslitum í fyrsta skipti sem er alltaf stórt skref.

Guðrún Fanney Briem verður að þakka einhverjum æðri máttarvöldum en hún átti kraftaverkajafnteflið að þessu sinni. Eftir stöðubaráttu framan af skákinni komst Iðunn inn í svörtu stöðuna með þungu mennina og tók að plokka peðin af Guðrúnu. Iðunn var mest orðin þremur peðum yfir með kolunnið tafl….þá dundu ósköpin yfir.
Iðunn nýbúin að gefa eitt peð til að gera a-peðið hættulegra. 55.a7?? missir skákina í jafntefli. Iðunni til tekna missti hún ekki alveg hausinn og skaut inn og skaut inn 58.a8=D! en annars hefði svartur getað tekið fyrst á f2 með skák og hvítur væri allt í einu í taphættu.

Staðan í flokknum er því í raun óbreytt, Jóhanna, Lenka og Guðrún Fanney hafa 1,5 vinning og baráttan verður hörð í næstu umferðum!
Í áskorendaflokki fóru fram tvær umferðir í dag. Þær Katrín Ósk Tómasdóttir og Halldóra Jónsdóttir voru báðar í stuði og hafa 3 vinninga af 3 mögulegum. Þær mætast ekki fyrr en í lokaumferðinni!

Ljósmyndir frá mótinu!
Almennt um mótið ->
LANDSLIÐSFLOKKUR KVENNA
Umferðartafla landsliðsflokks
- Föstudagurinn, 6. febrúar, kl. 18
- Laugardagurinn, 7. febrúar, kl. 13
- Sunnudagurinn, 8. febrúar, kl. 13
- Mánudagurinn, 9. febrúar, kl. 18
- Þriðjudagurinn, 10. febrúar, kl. 16
Tímamörk verða 90+30 auk 15 mínútna eftir 40 leiki
Verðlaun í landsliðsflokki
- 150.000 kr.
- 90.000 kr.
- 60.000 kr.
Íslandsmeistari kvenna í skák fær keppnisrétt í landsliðsflokki Skákþings Íslands árið 2027 og keppnisrétt í Ólympíuskákmótinu í Úsbekistan í september 2026.
Verðlaun skiptast jafnt séu fleiri ein jöfn í verðlaunasætum. Verði tvær eða fleiri efstar og jafnar verður teflt til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn með styttri tímamörkum.
Áskorendaflokkur kvenna
Fer fram helgina 6.-8. febrúar og teflt verður eftir bikarsyrpufyrirkomulagi. Tímamörk eru 30+30.
- Föstudagurinn, 6. febrúar, kl. 18:00
- Laugardagurinn, 7. febrúar, kl. 10:30
- Laugardagurinn, 7. febrúar, kl. 13:00
- Sunnudagurinn, 8. febrúar, kl. 10:30
- Sunnudagurinn, 8. febrúar, kl. 13:00
Auk verðlaunagripa verða úttekir á Chessable í verðlaun.
















