Óhætt er að segja að fjórða og næstsíðasta umferð á Íslandsmóti kvenna 2026 hafi verið hádramatísk! Spennan í loftinu var áþreifanleg en þegar leið á umferðina höfðu oddafiskanir, þær Lenka Ptacnikova og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir báðar stöður sem voru mitt á milli þessa að vera glataðar og tapaðar! Í lok umferðar sluppu þær báðar með skrekkinn og Lenka er efst fyrir lokaumferðina sem ætti samt að vera spennandi!

Við byrjum aðeins fyrir utan toppinn. Guðrún Fanney hafði hvítt gegn Tinnu og Tinna leitaði í gamla fjársjóðskistu úr landsliðinu og bauð upp á Albins mótbragð með svörtu! Guðrún virtist hafa fyrstu leikina á hreinu en lenti fljótlega í smá tímapressu.

Guðrúnu gekk ekki jafn vel að einfalda stöðuna og hún hefði viljað og Tinna var með fínt tafl þar til svartur þurfti að slétta úr peðastöðu hvíts með því að skipta upp á drottningum á d3. Eftir það hafði hvítur undirtökin og Guðrún náði að pressa fram vinning í endataflinu.

Á tímabili leit út fyrir að þessi vinningur Guðrúnar myndi skila henni í skipt fyrsta sæti ásamt nokkrum skákkonum….Skákgyðjan Caissa hafði hinsvegar annað í huga! Samt fínn sigur hjá Guðrúnu!

Jóhanna Björg hefði fyrirfram verið talin mun sigurstranlegri gegn Emilíu Emblu, sérstaklega með hvítu! Emilía fékk greinilega ekki minnisblaðið sem sagði henni að hún ætti að tapa!

Í miðtaflinu fann hún fína taktík!

26…Bxd3! var fínn leikur, eftir kaupin 27.Dxd3 Dxd3 28.Bxd3 Hxf3 var hvítur í vandræðum! Svartur getur tekið á g3 með skák ef biskupinn hörfar og svo á e5 og valdar hrókinn. Svartur er orðinn fullt af peðum yfir!

Emilía komst í unnið endatafl en leyfði Jóhönnu að sprikla full mikið. Spriklið skilaði sér loks þegar Jóhanna fann patt-trikk í stöðunni. Ekki laust við að landsliðsþjálfari kvenna hafi orðið eilítið ánægður eftir allmargar æfingar þar sem þemað PATT var tekið fyrir!

46.Hxe4!? var athyglisverð tilraun. Emilía hefði getað haldið áfram með t.d. Hb5 og svo Hg5 í kjölfarið en eins og gegn Tinnu vantaði annaðhvort aðeins meira sjálfstraust eða keppnisreynslu til að klára dæmið. Emilía tók á e4, 46…Hxe4?? og þá er pattið óumflýjanlegt eftir 47.Hxg7! Mögulega missti Emilía af því að eftir 47…Kh8 á hvítur 48.Hh7+! og pattið er aftur, óumflýjanlegt! 46.Hb5 og svo Hg5 hefði haldið bullandi vinningssénsum á hvítt, svipað og gegn Tinnu og þetta fer klárlega í reynslubankann hjá Emilíu sem er augljóslega á bullandi uppleið!

Jóhanna var ekki sú eina af oddafiskunum sem stóð höllum fæti. Lenka var lengst af með mun verra tafl gegn Iðunni og mátti hafa sig alla við til að halda jafnvæginu. Iðunn fann ekki rothöggið og á endanum var það Iðunn sem lék skelfilega af sér og gaf Lenku vinning sem hún átti að mörgu leiti ekki skilið miðað við flæði skákarinnar.

Eftir 41…c4 er eiginlega allt jafntefli ef hvítur vill. Í versta falli getur hvítur skipt upp á drottningarvængnum, fórnað biskupnum og hefur virki (fortress) á kóngsvængnum. 42.Be4?? hinsvegar tapar…“on the spot“ og Lenka slapp virkilega með skrekkinn!

Eftir þessa mögnuðu umferð hefur Lenka 3,5 vinning, Jóhanna hefur 3 vinninga og Guðrún 2,5 vinning. Á tímapunkti leit út fyrir að Lenka, Jóhanna, Guðrún og Iðunn myndi allar hafa 2,5 vinning fyrir lokaumferðina….skákgyðjan hafði aðrar hugmyndir!

Framundan er lokaumferðin á morgun. Allt annað en tap hjá Lenku gegn Guðrúnu skilar annaðhvort aukakeppni um titilinn eða titlinum. Jóhanna þarf að vinna sína skák og vona að Guðrún sé klár í slaginn gegn Lenku með svörtu.

Hætt er við því að það verði aftur háspenna og lífshætta í Hafnarfirðinum!

Ljósmyndir frá mótinu!

_D0A3521

Almennt um mótið ->

LANDSLIÐSFLOKKUR KVENNA

Umferðartafla landsliðsflokks

  1. Föstudagurinn, 6. febrúar, kl. 18
  2. Laugardagurinn, 7. febrúar, kl. 13
  3. Sunnudagurinn, 8. febrúar, kl. 13
  4. Mánudagurinn, 9. febrúar, kl. 18
  5. Þriðjudagurinn, 10. febrúar, kl. 16

Tímamörk verða 90+30 auk 15 mínútna eftir 40 leiki

Verðlaun í landsliðsflokki

  1.    150.000 kr.
  2.      90.000 kr.
  3.      60.000 kr.

Íslandsmeistari kvenna í skák fær keppnisrétt í landsliðsflokki Skákþings Íslands árið 2027 og keppnisrétt í Ólympíuskákmótinu í Úsbekistan í september 2026.

Verðlaun skiptast jafnt séu fleiri ein jöfn í verðlaunasætum. Verði tvær eða fleiri efstar og jafnar verður teflt til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn með styttri tímamörkum.

Áskorendaflokkur kvenna

Fer fram helgina 6.-8. febrúar og teflt verður eftir bikarsyrpufyrirkomulagi. Tímamörk eru 30+30.

  1. Föstudagurinn, 6. febrúar, kl. 18:00
  2. Laugardagurinn, 7. febrúar, kl. 10:30
  3. Laugardagurinn, 7. febrúar, kl. 13:00
  4. Sunnudagurinn, 8. febrúar, kl. 10:30
  5. Sunnudagurinn, 8. febrúar, kl. 13:00

Auk verðlaunagripa verða úttekir á Chessable í verðlaun.

- Auglýsing -