Kristján Örn Elíasson hefur í tvö ár stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.

Í gær mættu Þorsteinn Þorsteinsson og Björn Þorfinnsson í Skipholtið og Kjartan Briem tók símann!

Í kynningu um þáttinn segir:

Kristján Örn Elíasson tekur á móti þeim Þorsteini Þorsteinssyni, FIDE-meistara og ritstjóra Hagstofu Íslands og Birni Þorfinnssyni, alþjóðlegum meistara í skák og ritstjóra DV.is. Báðir kepptu þeir með úrvalsdeildarliði Taflfélags Vestmannaeyja sem varð Íslandsmeistari félagsliða í skák um síðustu helgi. Í þættinum ræða þeir „Öskubuskuævintýrið“ – eða leiðina að titlinum, undirbúninginn, liðsmenn félagsins, styrktaraðila, einstakar viðureignir og síðast enn ekki síst stressið og dramatíkina sem hefur fylgt þessu öllu eftir. Björn segir: „En það er ólýsanlega skemmtilegt að Taflfélag Vestmannaeyja hafi efir 100 ára tilvist sína loks hampað Íslandsmeistaratitli og ég verð ævinlega hreykinn af því að hafa fengið að taka þátt í því verkefni“ en Taflfélag Vestmannaeyja var stofnað í Vestmannaeyjum 26. ágúst 1926. Þeir félagar slá á þráðinn til Kjartans Briem, formanns skákdeildar Breiðabliks og ræða Alþjóðlega Kópavogsmótið sem hófst í gær en mótið er ætlað efnilegum ungum skákmönnum á aldrinum 16–30 ára og miðar að því að skapa sterkt umhverfi fyrir IM- og GM-áfanga.

Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.

- Auglýsing -