Það bar helst til tíðinda í þriðju umferð Alþjóðlega Kópavogsmótinu – Ungir Meistarar að FIDE-meistarinn Bárður Örn Birkisson vann sérdeilis glæsilegan sigur á úkraínska stórmeistaranum Mikhaylo Oleksiyenko. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson minnti einnig á sig og vann sinn annan sigur í röð. Hilmir Freyr Heimisson vann uppgjör íslensku titilveiðarana þegar hann lagði Aleksandr Domalchuk-Jonasson að velli.

Rennum yfir gang mála í umferð dagsins, þeirri þriðju af níu alls!

Bárður Örn Birkisson – Mikhaylo Oleksiyenko

FIDE-meistarinn Bárður Örn Birkisson náði sér í lífsnauðsynlegan sigur í gær upp á áfanga-möguleika þegar hann lagði Aleksandr Domalchuk-Jonasson að velli með svörtu mönnunum. Líklegast hefði ekki verið hægt að biðja um betra framhald heldur en akkúrat það sem átti sér stað í skák dagsins!

Bárður stýrði hvítu mönnunum gegn hinum heltrausta Mikhaylo Oleksiyenko frá Úkraínu. Bárður fékk fína stöðu en staðan vissulega í hinu gamla góða dýnamíska jafnvægi. Úkraínumaðurinn var fyrr út af sporinu…

Bárður fann leið til að fá beta, 17.Rc5 var góður leikur og hvítur fær ákveðið svart-reita-vald í stöðunni. Bárður fékk betra en missti mögulega af enn afgerandi leið í miðtaflinu

Hér hefði 20.Da4!? verið athyglisverður þar sem 20…Dxc5 er svarað með 21.b4! og hvítur vinnur mann þar sem það er oní á a6. Svartur fær bætur en hvítur á að standa betur! Þrátt fyrir þetta hafði Bárður betra tafl lengst af eftir þetta og tæknin hans að mestu leiti góð. Oleksiyenko þekktur fyrir góða baráttu en náði ekki að bjarga þessari skák! Vel gert hjá Bárði!!

Dagur Ragnarsson – Vignir Vatnar Stefánsson 

Vignir hafði svart gegn Degi sem hefur ekki byrjað mótið vel. Líklega má setja út á byrjanavalið hjá Degi í þessari skák því að þrátt fyrir að það halli í raun ekkert á hvítan í tölvumatinu þá er nokkuð ljóst að hvíta staða er mun meira krefjandi að tefla.

Í raun varð það tilfellið að Vignir, með svörtu, fékk stöðu sem aðeins hann gat unnið og var Vignir þá ekki enn kominn undir upphafstíma sinn. Vignir fékk þægilegt endatafl og sýndi styrkleika sinn og vann á endanum í raun nokkuð auðveldan sigur.

Dagur getur betur og sýnir vonandi sitt rétta andlit í seinni hluta mótsins en hann hefur fengið ansi erfitt prógram í upphafi móts!

Hilmir Freyr Heimisson – Aleksandr Domalchuk-Jonasson 

Hilmir er hættulegur með frumkvæðið,

Hér var á ferðinni mikilvæg skák á milli tveggja titilveiðara. Miðað við hversu erfitt er að ná stórmeistaraáfanga var eiginlega ljóst fyrir skákina að jafntefli gerði ekki neitt fyrir neinn. Þrátt fyrir það stefndi í jafntefli en Sasha fann ekki réttu leiðina á ögurstundu.

Hér var 23…Hd8! nauðsynlegur og svartur svarar 24.Dxc6 með 24…Dxd4 og staðan er í dýnamísku jafnvægi. Leikur Sasha 23…Hc8? reyndist skilja á milli í þessari skák. Eftir 24.Rd6 fær hvítur sterkt frípeð á d-línunni og náði Hilmir að stýra þessum vinningi í höfn.

 Birkir Ísak Jóhannesson – Paulius Pultinevicius 

Birkir Ísak var enn eina ferðina með trausta stöðu og góðan tíma vel fram í skákina en í miðtaflinu missti hann tökin og Paulius sýndi enn og aftur hversu sterkur skákmaður hann er. Litháíski Fjölnismaðurinn þarf ekki mikið og hann herti tökin jafnt og þétt þar til staða Birkis bognaði. Birkir þarf að finna sjálfstraustið aftur en hann var í dauðafæri á að ná IM-áfanga á dögunum en síðan þá hefur hann tapað 5 kappskákum í röð eftir að hafa varlað tapað tvöföldum þeim fjölda þar á undan!

Valery Kazakouski – Jaime Santos Latasa

Kazakouski náði að setja ágætis pressu á Jaime Santos Latasa með hvítu. Upp kom skoskur leikur, h4-afbrigðið. Báðir tefldu hratt og þekktu afbrigðið nokkuð djúpt en Litháinn sterki náði að setja Spánverjann í klemmu og á tímabili leit út fyrir að hann gæti knésett hann. Íslandsmeistarinn Latasa hefur hinsvegar ekki verið mikið fyrir að bogna hér á landi og gerði það heldur ekki í kvöld og hélt jafnteflinu!

Úrslit umferðarinnar:

Ótrúlegt en satt þá var jafntefli þeirra Kazakouski og Santos Latasa aðeins annað jafnteflið í fimmtán skákum það sem af er! Menn eru að tefla upp á vinning á þessu móti!

Staðan:

Paulius heldur dampi og hefur fullt hús. Jaime Santos Latasa sem fyrr „uber-solid“ og er í öðru sæti en gaman að sjá þrjá íslenska skákmenn blanda sér í toppbaráttuna, Bárður, Vignir og Hilmir hafa 2 vinninga í 3-5. sæti!

Næsta umferð:

Mótið heldur áfram á morgun Stúkunni í Kópavoginum en skákirnar hefjast 15:00. Bárður og Hilmir mætast í mikilvægri skák fyrir frekar áfangamöguleika beggja keppenda. Vignir reynir að halda áfram góðu gengi sínu í undanförnum umferðum með hvítu mönnunum gegn Kazakouski.

Skákdeild Breiðabliks í samstarfi við Helga Ólafsson á mikið hrós skilið fyrir mótahaldið en mót af þessu tagi hefur sárlega vantað fyrir íslenska titilveiðara undanfarin ár. Sigtryggssjóður kom jafnframt sterkur inn í þetta verkefni!

Forsvarsmenn mótsins ásamt Jóhönnu forseta og Ásdísi bæjarstjóra Kópavogs.

Kópavogur International 2026

Almennar upplýsingar um mótið:

Staðsetning Glersalurinn á þriðju hæð stúkunnar við Kópavogsvöll. Kaffi og veitingar verða á staðnum.

Dagskrá (9 umferðir, einn hvíldardagur)

  • Þriðjudagur, 10. mars, kl. 15:00 – Opnunarathöfn og 1. umferð
  • Miðvikudagur, 11. mars, kl. 15:00 – 2. umferð
  • Fimmtudagur, 12. mars, kl. 15:00 – 3. umferð
  • Föstudagur, 13. mars, kl. 15:00 – 4. umferð
  • Laugardagur, 14. mars, kl. 15:00 – 5. umferð
  • Sunnudagur, 15. mars, kl. 15:00 – 6. umferð
  • Mánudagur, 16. mars – Hvíldardagur
  • Þriðjudagur, 17. mars, kl. 15:00 – 7. umferð
  • Miðvikudagur, 18. mars, kl. 15:00 – 8. umferð
  • Fimmtudagur, 19. mars, kl. 11:00 – 9. umferð
  • Fimmtudagur, 19. mars, kl. 16:00 – Lokaathöfn

Keppendur

Meðalstig keppenda er 2432 skákstig og er stigahæsti skákmaður mótsins Jaime Santos Latasa sem varð Íslandsmeistari með Vestmannaeyingum um helgina. Í raun eru fjórir fyrstaborðsmenn úr keppninni með, þeirra á meðal Vignir Vatnar Stefánsson sem fer fyrir heimavarnarliðinu. Aðrir Íslendingar eru flestir titilveiðarar, menn sem gera sér vonir um annaðhvort áfanga að alþjóðlegum meistaratitli eða stórmeistaratitli.

Frekari upplýsingar:

- Auglýsing -