Laugardaginn 14. mars 2026 fer fram Íslandsmót barnaskólasveita í 1.-3. bekk í Rimaskóla, Sóleyjarimi 11, 112 Reykjavík. Mótið hefst kl. 13:00 og stendur til kl. 16:00.
Tefldar verða sjö umferðir eftir svissneska kerfinu. Tímamörk eru 5 mínútur + 2 sekúndur á hvern leik (5+2).
Sveitir skulu skipaðar fjórum nemendum úr 1.–3. bekk (ásamt allt að fjórum varamönnum). Skólar mega senda fleiri en eina sveit.
Skráningargjald er 12.000 kr. á sveit (hámark 24.000 kr. á skóla). Frítt er fyrir sveitir utan höfuðborgarsvæðsins.
Skráningu lýkur kl. 16:00 á fimmtudaginn 12. mars 2026. Ekki er hægt að skrá sveitir eftir það.
Verðlaun verða veitt fyrir:
- Efstu þrjár sveitirnar
- Efstu B–E sveitir
- Efstu þrjár sveitir frá landsbyggð
Núverandi Íslandsmeistari barnaskólasveita (1.–3. bekkur) er Hofsstaðaskóli
- Auglýsing -















