Afar fjölmennt var á Páskahraðskákmóti TR 2026. Það mættu 45 til leiks sem er metþátttaka, það er greinilega vinsælt að tefla meðan upprisunni er fagnað. Páskarnir eru að einhverju leyti rólegri hátíð en jólin, minni asi og meira kósý.
Skákstjóri hafði hugsað sér að það myndu mæta svona 27 og að hann myndi sjálfur taka þátt og helst vinna mótið. En þegar talan var farin yfir 40 var dómarahatturinn settur á – fátt annað í stöðunni. Það kom sér líka vel enda var ólöglegum leikjum leikið í hverri einustu umferð og stundum margir, jafnvel í sömu skákinni. En mótið gekk nú samt hratt fyrir sig og kláraðist 15:31. Auglýst var að mótinu lyki 15:30 en það má alltaf gera betur og lærdómurinn dreginn af þessum seinleika fyrir næsta ár.
Dýrindis páskaegg frá Bónus voru í verðlaun og svona urðu efstu sætin:
3. Davíð Kolka með 8.5 vinning
2. Lenka Ptácníková með 9 vinninga
Fyrsta sæti: Róbert Lagerman með 9.5 vinning
… og það úr 11 skákum. Efstur ungmenna varð Örvar Hólm Brynjarsson með 7.5 vinning.
Mótið á chess-results.
Hér má sjá myndir frá mótinu frá Tómasi Tandra.


















