Vilhjálmur í leik með Þróttir (mynd: Fótbolti.net)

Íslendingar tefldu víða í dag eins og síðustu daga og lauk nokkrum af mótunum. Hæst ber að nefna algjörlega stórkostlegan árangur hjá Vilhjálmi Pálmasyni sem var í skiptu efsta sæti í B-flokki á Grenke Open, á undan 1529 skákmönnum!

Grenke Open, Þýskalandi

Á Grenke A-Open kláraði Birkir Hallmundarson (1976) sitt mót með tap og jafntefli. Í fyrri umferðinni í dag tapaði hann gegn Kerim Karakol (2138) en gerði svo jafntefli við Marc Thiemann (2088).

Fínasta mót hjá Birki sem hækkar um 22 stig og fékk fínar og þéttar skákir

Í B-mótinu sem er U2000 eru 1531 skákmaður skráður til leiks og ekki er dónalegt að enda í efsta sæti. Vilhjálmur Pálmason (1935) vann báðar skákir sínar í dag og dugði það í skipt efsta sæti með Garic Sharajyan (1943) frá Armeníu sem lagði Liu Bei (1963) að velli í lokaumferðinni. Báðir komu þeir í mark með 8,5 af 9 en Garic hafði örlítið betri oddastig og er sigurvegari mótsins. Frábært hjá Vilhjálmi sem hækkar um 51 skákstig á mótinu!

Alicante, Spáni

Kandídatameistarinn Halldór Halldórsson kláraði með jafntefli í lokaumferðinni og landsliðskonan Guðrún Fanney Briem vann sína skák í lokaumferðinni.

Halldór endaði með 4 vinning en Guðrún 3,5 vinning. Halldór tapar einhverjum stigum en Guðrún fær smá gróða en stefndi í meira á tímabili en slæma kaflinn kom rétt fyrir lok mótsins.

6th 4NCL Easter Congress U2000, Englandi

Mótinu lauk í dag og endaði Unnar Ingvarsson með 4 vinninga, Erlingur Jensson 3 og Lárus H. Bjarnason með 2 vinninga.

5. Mikis Theodorakis International, Grikklandi

Sverrir Gestsson (1931) átti ágætis dag og fékk 1,5 vinning úr 2 skákum. Hann hefur 3 af 6 og lýkur móti hans á fimmtudaginn.

Mótið á chess-results

- Auglýsing -