Fátt virðist geta komið í veg fyrir sigur Úzbekans Javokhir Sindarov á Áskorendamótinu á Kýpur því þrátt fyrir að gera aðeins stutt jafntefli með svörtu í dag jókst forysta hans á toppnum. Hikaru Nakamura lagði Fabiano Caruana að velli og Sindarov því með tveggja vinninga forskot á toppnum á Caruana og Anish Giri sem náði Caruana að vinningum með því að leggja Praggnanandhaa að velli. Í kvennaflokki er „varamaðurinn“ Anna Mzychuk enn í efsta sæti þrátt fyrir tap í dag, slæmu fréttirnar er að fjórar skákkonur hafa náð henni. Háspenna í kvennaflokki!
Helstu tíðindi dagsins voru þó ekki endilega skákirnar beint heldur það að Javokhir Sindarov gerðist sekur um eilítið klaufaleg mistök en hann, eins og margir, notar greinilega lichess við undirbúning skáka og hafði gleymt að gera sín „study“ private í stað public. Vökul augu internetsins tóku eftir þessu.
Hér er hægt að sjá vídeó þar sem þetta sést -> Vídeó á streamable
Hér er jafnframt þráður á reddit -> Þráður á Reddit
Búið er að gera öll study-in prívat þannig að áhugasamir geta ekki fyllt inn í stílabækurnar sínar!
Kíkjum á áhugaverðar skákir dagsins í opna flokknum.
Esipenko – Sindarov
Sindarov gerði frekar auðvelt jafntefli með svörtu gegn Esipenko. Tefldi hann Bluebaum-varíantinn gegn Catalan og virtist jafna taflið nokkuð auðveldlega. Hvítur er peði yfir í lokastöðunni en nokkuð vonlaust að finna plan til að þróa stöðuna og svartur með aktífa stöðu. Esipenko ákvað að leyfa þráleik og jafntefli niðurstaðan.
Giri – Praggnanandhaa
Giri blandaði sér eilítið í baráttuna með því að leggja Praggnanandhaa að velli og náði þar með Caruana að vinningum. Giri fékk stöðu ekki ósvipaða þeirri sem Sindarov fékk gegn honum, góðan riddara á d4 gegn hvítreitabiskupi. Aðeins fleiri menn voru þó inná í stöðunni og Giri náði að nýta sér afleik Praggnananadhaa í erfiðri stöðu. Hvíta staðan sprakk út og frelsingi hans á Elíni Unni varð of sterkur!
Nakamura verið fjarri sínu besta á þessu móti en hann varð stór áhrifavaldur í dag þegar hann lagði Caruana að velli. Skákin var í jafnvægi framan af en Nakamura með örlítið betra.
Caruana hefði líklega getað varist með 28…Hab2 og hróksendataflið ætti að haldast. 28…h5? var slakur og Nakamura var á undan inn á sjöundu reitaröðina og kláraði svo unnið hróksendatafl í kjölfarið.
Jafntefli Wei Yi og Bluebaum mun litlu skipta þegar talið verður úr kössunum.
Sindarov hefur 6,5 vinning af 8 sem er +5 skor en Caruana og Giri hafa 4,5 vinning, +1 en svo er langt í fjórða sætið.
Kvennaflokkur:
Sviptingar urðu í kvennaflokki þar sem Anna Muzychuk gerði sig seka um mistök í drottningarendatafli.
Anna lék hér 59.a7?? og tapið er tapað. Leikir eins og 59.Dxh5 og 59.g4 stóðu til boða og hvítur heldur hættulegu a-peði sínu.
An incredible turnaround: Anna Muzychuk makes a blunder and is now losing the queen endgame against Divya Deshmukh, when she had been pressing for most of the game, and winning at one point!https://t.co/7jSbHrmqwj pic.twitter.com/wqBAOL1c16
— chess24 (@chess24com) April 7, 2026
Rússíbanamót Zhu Jiner heldur áfram. Nú lagði hún að velli samlöndu sína Tan Zhongyi. Jiner vann peð í miðtaflinu og náði að yfirspila Zhongyi með riddaraparið gegn biskupaparinu í kjölfarið.
Lagno blandaði sér líka í toppbaráttuna, lagði samlöndu sína Goryachkina að velli.
Loks skildu þær Bibisara og Vaishali jafnar.
Eftir þessar hremmingar eru þær nú fimm efstar með 4,5 vinning þær Muzychuk, Jiner, Lagno, Vaishali og Deshmukh. Erfitt að spá í spilin og virðast allar geta unnið allar!
Úrslit dagsins:
Round 8 | Results | FIDE Candidates & Women’s Candidates 2026
5 decisive games right after the rest day! 🔥
#FIDECandidates #FIDEWomensCandidates #FIDE #Chess pic.twitter.com/AjrNuwvM4e
— International Chess Federation (@FIDE_chess) April 7, 2026
Staðan:
Standings | After Round 8 | FIDE Candidates & Women’s Candidates 2026
🇺🇿 Javokhir Sindarov now leads the FIDE Candidates by 2 points, while the FIDE Women’s Candidates is currently led by five players: 🇺🇦 Anna Muzychuk, 🇮🇳 Divya Deshmukh, 🇮🇳 Vaishali Rameshbabu, 🇺🇦 Kateryna… pic.twitter.com/tWryqZ7jY0
— International Chess Federation (@FIDE_chess) April 7, 2026
9. umferð fer fram á morgun.
Tenglar:
Um mótið:
Kandidatamót FIDE fara fram á Kýpur, bæði í opna flokknum og kvennaflokki. Mótin eru lokastig í baráttunni um það hver fær að skora á heimsmeistarana í klassískri skák. Keppt er með átta keppendum í hvorum flokki, tvöfaldri umferð, allir við alla (round-robin). Alls eru tefldar 14 umferðir, og stendur dagskráin frá 29. mars til 15. apríl með hvíldardögum inn á milli. Bráðabanar fara fram 16. apríl ef þörf er á!
Í opna mótinu eru meðal keppenda Fabiano Caruana, Hikaru Nakamura og Anish Giri ásamt mönnum á borð við Wei Yi, Praggnanandhaa R, Javokhir Sindarov, Andrey Esipenko og Matthias Bluebaum, og sigurvegarinn fær réttinn til að tefla um heimsmeistaratitilinn gegn Gukesh Dommaraju síðar á árinu.
Í kvennaflokki er baráttan ekki síður hörð, með nöfnum eins og Zhu Jiner, Tan Zhongyi, Aleksandra Goryachkina og Kateryna Lagno í fremstu röð, og sigurvegarinn fær að skora á heimsmeistarann Ju Wenjun. Anna Muzychuk kom inn í mótið sem varamaður eftir að Koneru Humpy dró sig út.
















