Kraga- og Suðurnesjamót grunnskóla í skólaskák 2026 fer fram fimmtudaginn 9. apríl í fjölnota íþróttahúsinu Miðgarði í Garðabæ á 2. og 3. hæð. Mótið hefst stundvíslega kl. 16:30 – mæting 16:15.

Þátttökurétt á mótinu hafa nemendur í skólum á Suðurnesjum og Suðvesturkjördæmi að fráskildu Seltjarnarnesi.

Teflt er í 3 einstaklingsflokkum:

1-4. bekkur

5-7 bekkur

8-10 bekkur

Reiknað er með að hver flokkur taki u.þ.b.. 1,5 til 2 tíma.

Umferðarfjöldi og tímamörk verða tilkynnt á mótsstað og fer eftir skráningu en má gera ráð fyrir 5-7 umferðum í hverjum flokki með umhugsunartíma 5 mínútur + 2 sek á leik á mann.

Skráningarfrestur er til kl. 22, miðvikudaginn, 8. apríl.

slóð á skráningu

Skráðir keppendur

Vinsamlega skráið börnin sem fyrst.

Verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum flokki.

Þrír efstu í hverjum flokki fá keppnisrétt á Landsmótinu í skólaskák sem fram fer á Snæfellsnesi í byrjun maí.

Nánari upplýsingar gefur skákstjóri Páll Sigurðsson. (8603120) tg@tafl.is.

- Auglýsing -