Alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson (Sasha) kláraði í dag lokaumferðina á alþjóðlega mótinu í Sidney í Ástralíu. Fyrir umferðina var Aleksandr í skiptu efsta sæti með 6 vinninga af 8 og í góðum sénsum en lokaumferðin gekk ekki upp.
Aleksandr hafði hvítt gegn FIDE-meistaranum Reddy Annapureddy (2146) sem er heimamaður og fékk þokkalega sénsa í drottningalausu miðtafli. Leiðin var hinsvegar ekki greið og að einhverju leiti yfir-pressaði Sasha og endaði á að tapa skákinni sem var óþarfi.
Lokaniðurstaðan engu að síður fín. Aleksandr endar í 5. sæti með 6 vinninga af 9 og mætti hann öllum fimm stórmeisturnum sem tóku þátt. Þó ekki séu hér á ferðinni stigahæstu stórmeistarar heims kunna þeir samt skáklistina og 3 vinningar af 5 gegn stórmeisturum er gott hvar sem er í heiminum! Aleksandr hækkar um 9 elóstig við þennan árangur og sýnir bata- og styrkleikamerki eftir rólegt gengi í upphafi árs. „Chucky’s back“
- Skákir á lichess
- Heimasíða mótsins (úrslit, paranir, staða og dagskrá)
Sydney International Open Championships heitir mótið sem Aleksandr teflir á. Alls taka 37 skákmenn þátt og er Aleksandr númer 5 í styrkleikaröðinni en fimm stórmeistarar eru meðal þátttakenda.















