Dagur að tafli í Tælandi (Mynd: Heimasíða móts)

Dagur Ragnarsson lauk leik í dag á opna Tælenska, alþjóðlegu móti í Bangkok. Dagur gerði hálfgert kraftaverkajafntefli í lokaumferðinni og kom í mark með 6 vinninga eftir 9 umferðir. Landsliðskonan og FIDE-meistari kvenna Hallgerður Þorsteinsdóttir átti ekki gott mót og tapaði í lokaumferðinni.

Í lokaumferðinni hafði Dagur svart gegn alþjóðlegum meistara frá Indónesíu Arif Abdul Hafiz (2442). Dagur fékk fína stöðu eftir byrjunina, biskupaparið en þurfti samt að finna nákvæma leiki. Einn ónákvæmur leikur og einn eldrauður „blunder“ og Dagur fékk erfitt tap, tapaði peði og svo skiptamun. Úrvinnslan hefði átt að vera auðveld en Indónesinn klikkaði í einfaldri úrvinnslu…

Vinningurinn ætti að vera nokkuð auðveldur, Ke4 og labba í átt að hróknum. Svartur á ekkert betra en hrók upp í borð til að stopp mátið og þá fer hvíti kóngurinn á a6 og „gg“ eins og unga fólkið myndi segja í dag! Þess í stað ákvað Indónesinn að reyna að klukka borðið hjá svörtum…sem gafst ekki vel!

Hallgerður hafði svart gegn enn einum Indverjanum, Dhoundiyal Amit (1795) og tapaði sinni skák eins og áður sagði.

Dagur endaði með 6 vinninga í 28. sæti og hækkar um 7 elóstig. Hallgerður endaði með 2,5 vinning, var langt frá sínu besta og tapaði rétt rúmum 60 elóstigum.

Níu skákmenn urðu efstir og jafnir með 7 vinninga. Efstur á stigum varð Khuong Duy Dau og þar með sigurvegari mótsins. Loek van Wely og Nigel Short enduðu einnig með 7 vinninga og kunna greinilega mannganginn þokkalega ennþá!

Um mótið:

241 skákmaður tók þátt í A-flokki á Bangkok Open. Dagur var númer 45 í stigaröðinni en Hallgerður 127. Stigahæstur keppenda var „Lókurinn“ Loek van Wely en þekktastur keppenda og sá sem hefur oftast unnið mótið er önnur goðsögn, Nigel Short. Tefld var ein skák á dag, níu dagar.

- Auglýsing -