Vignir við upphaf 6. umferð á EM 2026 í Katowice. (Mynd: GB)

Vignir Vatnar Stefánsson teflir nú úrslitaskák um að vinna sér inn sæti á Heimsbikarmótinu í skák. Vignir verður að vinna gegn Ísraelanum Maxim Rodhstein (2598) til þess að vinna sig inn í topp 20 á Evrópumótinu en það gefur rétt á Heimsbikarmótið sem er eitt vinsælasta skákmót hverju sinni (haldið annað hvert ár). Vignir hefur fyrir umferðina 7 vinning af 10 mögulegum. Hér að neðan er tengill á skákina (15 mínútna töf á leikjum).

Staða efstu manna:

Þrír Azerar af efstu fimm mönnum með 8 af 10. Vignir er í 29. sæti á oddastigum, gæti komist hærra með hagstæðum úrslitum annarra keppenda á oddastigum en verður að öllum líkindum að vinna til að komast í topp 20.

Vignir hefur hvítt gegn Maxim Rodshtein. Góðu fréttirnar eru að Vignir vann hann í síðustu skák þeirra og Rodshtein þarf eins og Vignir á sigri að halda til að komast á topp 20. Hannes, Hilmir og Josef reyna svo að sjálfsögðu að klára mótið eins vel og hægt er.

Útsending ECU:

Um mótið:

Evrópumót einstaklinga fer fram í Katowice í Póllandi 7-19. apríl en teflt er á hverjum degi en frídagar 11. og 17. apríl. Tefldar eru 11 umferðir um Evrópumeistaratitilinn og jafnframt sæti á Heimsbikarmótinu, mikið í húfi. Sætin eru eftirsótt þar sem Heimsbikarmótið er ávallt eitt vinsælasta mótið þegar það fer fram (annað hvert ár) og jafnframt getur það verið leið til að komast á Áskorendamótið (sem er nú í gangi).

Alls taka 501 skákmenn þátt á mótinu og eru íslensku keppendurnir fjórir. GM Vignir Vatnar Stefánsson (2512) er númer 74 í stigaröðinni, GM Hannes Hlífar Stefánsson (2414) er númer 154 í stigaröðinni, IM Hilmir Freyr Heimisson (2297) er númer í 256 stigaröðinni og Josef Omarsson (2045) er númer 400 í stigaröðinni. Stigahæstur er Igor Kovalenko (2685) frá Úkraínu.

Íslensku keppendurnir eru (sjá myndband):

 

 

- Auglýsing -