Þrjár íslenskar sveitir hófu í dag taflmennsku á Heimsmeistaramóti öldungasveita sem fram fer í Durres í Albaníu. Ísland teflir fram þriðju stigahæstu sveitinni í flokki 65+ og fimmtu stigahæstu sveitina í flokki 50+. Sveit eingöngu skipuð Vestfirðingum í flokki 50+ er svo ellefta stigahæsta sveitin. Ísland vann þægilegra sigra í 50+ og 65+ en vestfirska sveitin gerði jafntefli gegn sveit frá Albaníu.

65+ flokkur

Metþátttaka virðist vera á mótinu en alls eru 54 sveitir skráðar til leiks í 65+ flokknum. Öldungamótin hafa verið að vaxa undanfarin ár og ólíklegt að það dali á næstu árum. Íslenska sveitin er sterk, sú þriðja stigahæsta en hana skipa:

GM Helgi Ólafsson – 2439
GM Margeir Pétursson – 2387
GM Jón L. Árnason – 2407
FM Þorsteinn Þorsteinsson – 2220
IM Áskell Örn Kárason – 2121

í fyrstu umferðinni mætti íslenska sveitin sveit sem titlar sig sem „pólskir amatörar“. Sveit sem á að vinnast á pappír. Helgi hvíldi í fyrstu umferð og liðið vann góðan og þægilegan 3-1 sigur, jafntefli með svörtu og sigrar með hvítu.

Margeir vann þægilegan sigur með hvítu, vann skiptamun í miðtaflinu og þurfti eilítið að taka til í stöðunni en var aldrei í vandræðum.

Andstæðingur Jóns á 2. borði tefldi ekki upp á neitt nema að drepa taflið og ójafnvægið aldrei nægjanlega mikið í stöðunni fyrir Jón til að tefla til vinnings með svörtu.

Þorsteinn steig fast til jarðar á 3. borði og slátraði sínum andstæðing!

Andstæðingar Áskels var ekki heldur í víghug eins og 2. borðið hjá Pólverjum og hér varð stutt jafntefli niðurstaðan.

Úrslit:

Næst á dagskrá er England-3 hjá íslenska liðinu.

50+ flokkur

Íslenska sveitin í 50+ er sterk en hana skipa:

GM Jóhann Hjartarson – 2466
GM Þröstur Þórhallsson – 2392
IM Karl Þorsteins – 2404
FM Ágúst S. Karlsson – 2224
FM Rúnar Sigurpálsson – 2236

Sveit Vestfirðinga er skipuð:

FM Guðmundur Gíslason – 2251
CM Magnús P. Örnólfsson – 2163
FM Halldór Grétar Einarsson – 2173
CM Guðmundur Halldórsson – 2105

Íslenska sveitin mætti finnskri sveit og öruggan 3.5-0.5 sigur.

Þröstur vann fínan sigur á fyrsta borði þar sem hann hélt fullri stjórn í því að tefla upp á tvö úrslit. Finninn bugaðist á endanum undir pressunni.

Á öðru borð tefldi Karl Þorsteins í fyrsta skipti í einhver ár og gladdi það marga. Næst á dagskrá er að ná Guðmundi Sigurjónssyni í 65+ liðið á næsta ári (innskot: Gauti Páll).  Karl hafði svart og vann góðan tæknilegan sigur án áhættu. Veikt peð hvíts vannst í miðtafinu og endataflið lítið mál!

Á þriðja borði kom eina jafnteflið. Ágúst Sindri reyndi eitthvað að pressa með biskupaparið en staðan hafði einfaldast of mikið. Traust liðakeppnistaflmennska og þá sætta menn sig stundum við jafntefli gegn stigahærri með hvítu.

Rúnar Sigurpálsson vann svo með svörtu. Rúnar fékk blússandi sókn í miðtaflinu og stýrði því svo í auðunnið hróksendatafl.

Öruggur sigur á Finnunum.

Vestfirðingarnir gerðu 2-2 jafntefli við sveit frá Albaníu. Örlítil vonbrigði miðað við stig en Albanarnir geta oft verið seigar en stigin gefa til kynna.

Á morgun fær Ísland sveit Þýskalands frá Bielefeld en Vestfirðingar fá England-4.

- Auglýsing -