Vignir Vatnar Stefánsson tryggði sér fyrr í dag sæti á Heimsbikarmótinu í skák með dramtískum sigri gegn Ísraelanum Maxim Rodhstein (2598) í algjörri háspennuskák. Eftir frábæran byrjanaundirbúning Vignis náði Ísraelinn að halda taflinu á floti og skákin var orðin mjög tvísýn í tímahraki en Vignir hélt ró sinni og fann mátnet þegar Ísraelinn missti tökin. Stórkostlegur sigur hjá Vigni sem endar með 8 vinninga af 11 mögulegum í 15. sæti og árangur (rating performance) upp á 2656 elóstig.
Fyrir umferðina var staðan eftirfarandi:

Vignir sat í 29. sæti og nokkuð ljóst að ekkert annað en sigur dugði til að komast í topp 20. Efstu menn, þar af þrír Azerar, voru með 8 af 10 og þeim var ekki náð og hinir fyrir neðan með 7,5 vinning líklegir til að tefla upp á jafntefli til að tryggja sín sæti. Vignir varð því að vinna en sem betur fer var andstæðingur hans, Maxim Rodshtein í sömu stöðu.
Skákin hjá Vigni fór vel af stað. Undirbúningur gekk fullkomlega upp. Vignir tók meira að segja smá póker í upphafi skákar og þóttist þurfa að hugsa sig aðeins um áður en hann skellti undirbúningi sínum á borðið. Byrjanalínan sem Vignir valdi var hvöss, hann fórnaði peði og Ísraelinn þurfti að eyða miklum tíma. Nokkrar jarðsprengjur lágu í stöðunni sem Ísraelinn forðaðist.
Hér t.d. hefði 13…c5 verið eðlilegur leikur og staðan er góð í öllum tilvikum nema eftir 14.Rxf7! Dxf7 15.Rf6! og svo tekið á b7 (ekki á f7!). Mikilvægt í þessum varíanti að peðið á g4 valdar hvítu drottninguna! Rodshtein forðaðist þetta og lék …g6 sem var ekki endilega bestur en næstu leikir voru góðir hjá honum (miðað við uppástungur tölvuforrita). 15…h5 var fyrsta augnablikið sem Vignir þurfti að hugsa. Hann mundi að 15…0-0-0 16.a4 var gott á hvítt og var í undirbúningi hans fyrir skákina #TakkBirkirÍsak
Hér fór Vignir í fyrsta skipti að nota tímann sinn að einhverju ráði en eftir 15. leik svarts var Vignir næstum því með klukkutíma í tímaforskot. 1 klst og 20 mínútur á klukkunni gegn rétt rúmlega 20 mínútum. Sá tími jafnaðist hinsvegar jafnt og þétt og í 21. leik þegar staðan var enn tvísýn var tíminn búinn að jafnast og svartur búinn að forðast helstu jarðsprengjur í stöðunni.
21.Ha5 var ekki bestur skv. tölvunum, 21.Rxb5 hefði haldið betra tafli á hvítt en eftir rétta skiptamunsfórn 21…Hxd6 var taflið mjög tvísýnt og mikið tímahrak framundan.
Mikilvægt augnablik kom í 28. leik en þá var mikil undiralda í stöðunni.
Vignir lék hér gríðarlega góðum leik 28.h3! sem nær stjórn á stöðunni og kemur í veg fyrir drottningarkaup. Í stuttu samtali eftir skákina spurði ég Vigni út í þennan leik og hann svaraði: „Bíddu aðeins, Ivanchuk er að spyrja mig út í verðlaunaafhendinguna….“ en leikurinn var góður og örfáum leikjum síðar kom lykilaugnablikið
Spjall félags miðaldra titilhafa á fésbók fór gjörsamlega á límingunum hér, +8 birtist á tölvuskjám og ýmis lýsingarorð voru vörpuð manna á milli. Almenn geðshræring og stress, 30.De3 er unnið hér á hvítt og nánast mát. Vignir fann leikinn og öskur ómuðu um Faxafen 12 þar sem menn voru samankomnir að fylgjast með gangi mála í dag. Öskur og óp í Faxafeni eru reyndar ekkert nýtt fyrirbrigði.
Eftir 30…Kb7 var það bara formsatriði fyrir skákmann með styrkleika Vignir að finna 31.Hxa6!! sem tryggir mátsókn eða liðsvinninga fyrir hvítan. Vignir kláraði dæmið og 8 vinningar í hús og Heimsbikarmótssætið í hús!
Meðan á skák stóð voru líflegar umræður á inni á Facebookhópnum „Íslenskir skákmenn“
Útsending ECU:
Önnur úrslit voru fín, Hannes gerði jafntefli í hörkuskák við IM Cieslak, Hilmir lagði stigalægri andstæðing og Josef endaði á jafntefli.
Lokaniðurstaðan því 8 vinningar af 11 hjá Vigni, enn og aftur stórkostlegur árangur og 15. sætið niðurstaðan!
Lokastaða efstu manna:

Vignir eins og áður sagði 15. á stigum en 20 efstu skákmenn komast á næsta Heimsbikarmót. Fjölmargir sterkir skákmenn sástu eftir og líklegast verulega svekkjandi niðurstaða hjá þeim þremur sem fengu 8 vinninga af 11 en sátu eftir á oddastigum. Hannes endaði í 128. sæti með 6,5 vinning, hækkar örlítið á stigum. Hilmir endaði í 199. sæti með 6 vinninga og stendur í stað stigalega. Josef endaði í 363. sæti og hækkar um 31 elóstig. Allir íslensku keppendurnir enduðu ofar en styrkleikaröð þeirra gaf til kynna.
Sigurvegari á mótinu var með þeim óvæntari í sögunni. Ungur úkraínsku alþjóðlegur meistari Roman Dehtiarov lagði Anton Gujiarro í lokaumferðinni og endaði einn efstur með 9 vinninga. Roman fær að launum stórmeistaratitil fyrir sigurinn og auk þess sætið eftirsótta á næsta Heimsbikarmóti.
Um mótið:
Evrópumót einstaklinga fór fram í Katowice í Póllandi dagana 7.–19. apríl en teflt var á hverjum degi, með frídögum 11. og 17. apríl. Tefldar voru 11 umferðir um Evrópumeistaratitilinn og jafnframt sæti á Heimsbikarmótinu, og var því mikið í húfi. Sætin voru eftirsótt þar sem Heimsbikarmótið er ávallt eitt vinsælasta mótið þegar það fer fram (annað hvert ár) og jafnframt getur það verið leið til að komast á Áskorendamótið (sem var þá í gangi).
Alls tóku 501 skákmenn þátt í mótinu og voru íslensku keppendurnir fjórir. GM Vignir Vatnar Stefánsson (2512) var númer 74 í stigaröðinni, GM Hannes Hlífar Stefánsson (2414) var númer 154 í stigaröðinni, IM Hilmir Freyr Heimisson (2297) var númer 256 í stigaröðinni og Josef Omarsson (2045) var númer 400 í stigaröðinni. Stigahæstur var Igor Kovalenko (2685) frá Úkraínu.















